Marel á sjávarafurðasýningunni í Kalkútta
Eins stærsta kaupstefna fyrir sjávarafurðir og viðskipti með fisk á Indlandi var opnuð í Kalkútta 15. febrúar. Kaupstefnan, India International Seafood Show (IISS), hefur verið haldin á þriðja áratugi í helstu borgum landsins og hafa íslensk fyrirtæki tekið þátt í henni. Að þessu sinni var fyrirtækið Marel India með aðalstöðvar í Bangalalore í hópi um 350 fyrirtækja, sem kynntu framleiðslu sína og viðskipti. Búist er búist við þúsundum gesta. Anupriya Patel, aðstoðarviðskipta- og iðnaðarráðherra opnaði sýninguna og ræddi m. a. metnað stjórnvalda í fiskveiðum og ræktun og útflutningi. Guðni Bragason sendiherra sótti kaupstefnuna og Rahul Chongtham viðskiptafulltrúi sóttu ráðstefnuna í fylgd Sharad Varma aðalræðismanns Íslands í Kalkútta.