Fimm styrkir veittir úr Vinnuverndarsjóði
Fyrsta úthlutun úr nýstofnuðum Vinnuverndarsjóði hefur farið fram og hlutu fjórar rannsóknir og eitt verkefni styrki. Sjóðurinn var settur á fót á síðastliðnu ári og er samstarfsverkefni félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins og Vinnueftirlitsins. Markmið hans er að efla rannsóknir á sviði vinnuverndar og stuðla að bættri vinnuvernd á íslenskum vinnumarkaði.
Auglýst var eftir umsóknum um styrki og hafði sjóðurinn tíu milljónir króna til úthlutunar.
Eftirtalin hlutu styrki:
Frá vinnuklefa til sófans: Áhrif vinnuaðstæðna á líðan starfsfólks
- Umsækjendur: Dr. Thamar Heijstra og dr. Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, prófessorar í félagsfræði við Háskóla Íslands.
- Styrkupphæð: 3.000.000 kr
Áhrif sjálfvirknivæðingar og fjarvinnu á starfstengda kulnun, starfstengd viðhorf, upplifun og hegðun í formi áforma um starfslok, auk tengsla við fjarvistir og starfsmannaveltu
- Umsækjendur: Arney Einarsdóttir, prófessor við Háskólann á Bifröst og doktor í mannauðsstjórnun, og Katrín Ólafsdóttir, dósent í Háskólanum í Reykjavík og doktor í vinnumarkaðshagfræði.
- Styrkupphæð: 2.990.000 kr.
Áhrif starfsumhverfis hjúkrunarfræðinga á kulnun í starfi
- Umsækjandi og verkefnisstjóri: Ásdís Aðalbjörg Arnalds, doktor í félagsráðgjöf og forstöðumaður Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands.
- Styrkupphæð: 2.000.000 kr.
Eigindleg rannsókn á orsökum kulnunar meðal hjúkrunarfræðinga á Landspítala. Markmiðið er að öðlast skilning á því hvernig kerfisbundnir þættir í starfi hjúkrunarfræðinga geta gert þá útsetta fyrir kulnun. Rannsóknarniðurstöður verða nýttar til að móta tillögur að úrbótum á starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga í samráði við starfsfólk Landspítala.
Heilsueflandi vinnuumhverfi og góð vinnustaðamenning í skólum
- Umsækjendur: Dr. Sigrún Gunnarsdóttir, prófessor við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og Dr. Anna Magnea Hreinsdóttir, aðjunkt við Deild kennslu- og menntunarfræða í Háskóla Íslands.
- Styrkupphæð: 1.000.000 kr.
Rannsókn sem miðar að því að auka þekkingu á heilsueflandi vinnuumhverfi og góðri vinnustaðamenningu í grunn- og leikskólum, sem getur haft góð áhrif á vellíðan kennara og dregið úr fjarveru þeirra og brottfalli úr starfi. Rannsóknin byggir á viðtölum við stjórnendur og kennara í skóla þar sem vel gengur.
Vinnuvernd og vinnuréttur – fræðsla fyrir nemendur með erlendan tungumála- og menningarbakgrunn
- Umsækjandi: Tækniskólinn, skóli atvinnulífsins. Verkefnisstjóri er Þröstur Þór Ólafsson, öryggisstjóri Tækniskólans.
- Styrkupphæð: 1.000.000 kr.
Gerð fræðsluefnis um vinnuverndarmál á íslenskum vinnumarkaði fyrir nemendur með erlendan tungumála- og menningarbakgrunn.
Til stendur að auglýsa aftur eftir umsóknum um styrki í sjóðinn síðar á þessu ári og verður sama styrkupphæð til úthlutunar.