Hoppa yfir valmynd
25. september 2019 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Netógnir í nýjum heimi - ráðstefna um netöryggismál

Netógnir í nýjum heimi er viðfangsefni ráðstefnu sem samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið heldur um netöryggismál. Ráðstefnan verður haldin í Veröld – húsi Vigdísar fimmtudaginn 3. október í tilefni af evrópska netöryggismánuðinum í október. Allir eru velkomnir en skráning er á vef Stjórnarráðsins.

Á ráðstefnunni verður kynnt ný lagaumgjörð um netöryggismál og samhæfing þeirra á alþjóðavísu. Þá verður fjallað um baráttuna við netglæpi, netöryggisvitund ungs fólks, upplýsingaöryggi hjá hinu opinbera og netöryggi í fjórðu iðnbyltingunni. Fundarstjóri er Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri. 

Dagskrá:

  • 9:00    Ávarp 
    Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.

  • 9:10    Nýir tímar - ný umgjörð
    Sigríður Rafnar Pétursdóttir, lögfræðingur í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu

  • 9:30    Netbrot, nálgun og sýn lögreglu
    Karl Steinar Valsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

  • 9:50    Samhæfing í netöryggismálum – hlutverk PFS
    Unnur Sveinbjarnardóttir, lögfræðingur hjá Póst- og fjarskiptastofnun

  • 10:10    Kaffi

  • 10:25    IPv6: Keyrum þetta af stað
    Tryggvi Farestveit, forstöðumaður hýsingarlausna hjá Opnum kerfum

  • 10:45    Tæknilegt líf ungra barna – byggjum traustan grunn
    Hildur Halldórsdóttir, verkefnastjóri hjá Heimili og skóla og SAFT

  • 11:05    Straumurinn og upplýsingaöryggi á Stafrænu Íslandi
    Vigfús Gíslason, tækniarkitekt og sérfræðingur hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu

  • 11:25    4. iðnbyltingin: Öld tækifæra – ef öryggið er í öndvegi 
    Sigurður Emil Pálsson, formaður Netöryggisráðs, samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta