Nýjar tímasetningar kynningarfunda um Hálendisþjóðgarð
Umhverfis- og auðlindaráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, heldur á næstu dögum átta fundi vítt og breitt um landið þar sem kynnt verða áform um stofnun Hálendisþjóðgarðs. Í síðustu viku voru fyrirhugaðir fundir um allt land sem fresta þurfti vegna veðurs.
Í samráðsgátt stjórnvalda má finna frumvarp er lýtur að stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands, á landsvæði sem er í sameign þjóðarinnar; þjóðlendum og friðlýstum svæðum innan miðhálendisins. Þetta er í samræmi við tillögur nefndar fulltrúa allra þingflokka og stjórnvalda, bæði ríkis og sveitarfélaga, sem vann að undirbúningi stofnunar þjóðgarðsins.
Á fundunum mun ráðherra m.a. fara yfir forsendur og markmið með stofnun Hálendisþjóðgarðs og kynna helstu atriði frumvarpsins.
Fundirnir verða haldnir á eftirtöldum stöðum:
Sunnudagur 12. janúar
- 11:00 Reykjadalur, Félagsheimilið Breiðumýri
- 16:00 Húnavatnshreppur, Húnavallaskóli
- 20:00 Borgarnes, Hótel Hamar
Mánudagur 13. janúar
- 17:00 Reykjavík, Veröld – hús Vigdísar, fyrirlestrasalur. Fundurinn verður í beinu streymi á netinu.
Þriðjudagur 14. janúar
- 19:30 Egilsstaðir, Hótel Valaskjálf
Miðvikudagur 15. janúar
- 13:00 Öræfi, Hótel Skaftafell í Freysnesi
- 20:00 Hvolsvöllur, Midgard Base Camp
Fimmtudagur, 16. janúar
- 20:00 Biskupstungur, félagsheimilið Aratunga
Fundirnir eru öllum opnir – verið velkomin.
Nánar um drög að frumvarpi um Hálendisþjóðgarð
Spurt og svarað um Hálendisþjóðgarð
Frumvarp til laga um Hálendisþjóðgarð í samráðsgátt stjórnvalda