Hoppa yfir valmynd
4. nóvember 2020 Matvælaráðuneytið

Opnað fyrir skil á haustskýrslum

Skila þarf haustskýrslu í Bústofni eigi síðar en 20. nóvember 2020.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur opnað fyrir skráningar á haustskýrslum fyrir árið 2020 í Bústofni. Í samræmi við 10. gr. laga um búfjárhald nr. 38/2013, er öllum umráðamönnum búfjár skylt að skila árlega rafrænni haustskýrslu í Bústofni, eigi síðar en 20. nóvember. Í haustskýrslunni skal koma fram fjöldi ásetts búfjár af hverri tegund, allt búfé í hagagöngu og á hvaða jörð eða landspildu það er. Einnig skal koma fram gróffóðuruppskera af hefðbundnum nytjatúnum og leigutúnum og fyrningar, auk upplýsinga um aðra fóðuröflun og landstærðir. Minnt er á að skilyrði fyrir stuðningsgreiðslum í landbúnaði eru fullnægjandi skil á haustskýrslu. Skráning í Bústofn er með rafrænu skilríki eða Íslykli.

 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin
15. Líf á landi

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta