Ögmundur Jónasson tekur við sem heilbrigðisráðherra
![Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra tekur við lyklavöldum að heilbrigðisráðuneytinu](/media/velferdarraduneyti-media/media/frettir/Lyklaskipti_1.jpg?proc=singleNewsItem)
Ögmundur Jónasson tók í dag við embætti heilbrigðisráðherra og tekur hann við embættinu af Guðlaugi Þór Þórðarsyni.
Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra, tók við lyklavöldunum í heilbrigðisráðuneytinu síðdegis, þegar fráfarandi heilbrigðisráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, afhenti lykla ráðuneytisins og kvaddi svo sem venja er til. Nýr ráðherra og sá fráfarandi skiptust á skoðunum um heilbrigðisþjónustuna og óskuðu hvor öðrum farsældar á nýjum starfsvettvangi.