Mál nr. 93/2016 Úrskurður 18. nóvember 2016
Mál nr. 93/2016 Eiginnafn: Lalíla
Hinn 18. nóvember 2016 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 93/2016 en erindið barst nefndinni 9. nóvember.
Eiginnafnið Lalíla (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Lalílu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Lalíla (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.