Mál nr. 94/2016 Úrskurður 18. nóvember 2016
Mál nr. 94/2016 Eiginnafn: Korri
Hinn 18. nóvember 2016 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 94/2016 en erindið barst nefndinni 14. nóvember.
Eiginnafnið Korri (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Korra, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Korri (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.