Takmörkunum á skólastarfi vegna COVID-19 aflétt
Takmörkunum á skólastarfi vegna COVID-19 verður aflétt frá og með morgundeginum 12. febrúar með gildistöku nýrrar reglugerðar um samkomutakmarkanir. Breytingin felur í sér rýmkun á sóttvarnareglum, fjöldatakmörk verða 200 manns og heimilt er að halda skólaskemmtanir í grunn- og framhaldsskólum án nokkurra takmarkana.
Þeir sem þegar eru í sóttkví þurfa ekki að mæta í sýnatöku til að losna og á það einnig við um þá sem áttu að fara í sýnatöku í dag. Þeim sem hafa verið útsettir fyrir smiti verður ekki lengur skylt að sæta smitgát þótt hvatt sé til hennar og þar með fellur jafnframt brott skylda til sýnatöku í lok smitgátar. Reglur um einangrun verða óbreyttar.
Reglur um þá sem koma um landamæri Íslands breytast ekki.
Nýja reglugerðin um takmörkun á samkomum gildir til og með 25. febrúar.
Helstu breytingar á samkomutakmörkunum eru eftirfarandi:
- Skólar: Reglugerð um takmörkun á skólastarfi fellur brott. Þar með gilda almennar reglur um samkomutakmarkanir í skólum, þó með undantekningum til rýmkunar.
- Skólaskemmtanir: Heimilt er að halda skólaskemmtanir í grunn- og framhaldsskólum án nokkurra takmarkana.
- Íþróttakeppnir og -æfingar: Keppnir og æfingar heimilar með 200 manns í hólfi.
- Hreyfing: Sund- og líkamsræktarstöðvum sem og skíðasvæðum er heimilt að taka á móti gestum með fullum afköstum.
- Almennar fjöldatakmarkanir: Fara úr 50 í 200 manns innandyra. Fjöldatakmarkanir utandyra falla brott.
- Grímunotkun: Aðeins verður skylt að bera grímu ef ekki er hægt að viðhafa 1 metra reglu.
- Fjölmennir viðburðir: Heimilt verður að halda 1.000 manna viðburði að því tilskildu að allir sitji í sæti og beri grímu. Heimilt er að halda hlé á viðburðum og selja veitingar án takmarkana.
Nánari upplýsingar: