Fjármálastöðugleikaráð - fundargerð frá 10. september 2014
Fjármálastöðugleikaráð
10. september 2014
Ráðsmenn: Bjarni Benediktsson, formaður, Már Guðmundsson, Unnur Gunnarsdóttir.
Aðrir fundarmenn: Guðmundur Árnason, Sigríður Benediktsdóttir, Sigurður Árni Kjartansson, Tómas Brynjólfsson, Steindór Grétar Jónsson (ritar fundargerð)
Fundur settur kl. 13:00
1. Starfsreglur fjármálastöðugleikaráðs
Drög að starfsreglum, sem rituð voru í fjármála- og efnahagsráðuneytinu tekin til umræðu. Samþykkt að vinnuhópur taki við drögunum og vinni þau frekar með athugasemdir ráðsmanna til hliðsjónar. Málið verði tekið fyrir á nýju á næsta fundi ráðsins.
2. Önnur mál
- Opinber stefna um fjármálastöðugleika
Kerfisáhættunefnd semur drög að opinberri stefnu um fjármálastöðugleika í samvinnu við ráðuneytið. - Næsti fundur
Næsti fundur ráðsins verður fyrir árslok 2014, líklega í seinni hluta október. - Fréttatilkynning
Drög að fréttatilkynningu um fyrsta fund ráðsins kynnt ráðinu.
Fundi slitið kl. 14:25