Hoppa yfir valmynd
13. nóvember 2019 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Árangur Íslendinga afar góður í Horizon 2020

Þórdís Kolbrún og Signe Ratso, varasviðsstjóri framkvæmdastjórnar ESB - mynd

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, nýsköpunarráðherra, fundaði nýverið með Signe Ratso, varasviðsstjóra framkvæmdastjórnar ESB á sviði rannsókna og nýsköpunar, í tengslum við kynningarfund um nýsköpunarstyrki Evrópusambandsins.

Á fundinum kom fram að árangur Íslendinga af umsóknum  í evrópska samkeppnissjóði hefur verið mjög góður. Í Horizon 2020 er árangurhlutfall íslenskra umsækjenda um 20% í samanburði við 14% meðaltal allra þátttökuríkja.  Tæpur helmingur styrkjanna hefur farið til fyrirtækja hér á landi sem er einnig hátt hlutfall þegar tekið er mið af öðrum þjóðum.

Í nýrri samstarfsáætlun, sem kynnt er undir nafninu Horizon Europe og gildir fyrir tímabilið 2021-2027, er ein mikilvægasta breytingin sú að umtalsvert meiri áhersla verður lögð á nýsköpun. Standa vonir til að  árangur Íslendinga verði jafn góður undir Horizon Europe og í fyrri áætlunum.

Á fundinum með Signe Ratso gerði ráðherra einnig grein fyrir nýrri nýsköpunarstefnu fyrir Ísland og þeim fimm stoðum sem hún byggir á: hugarfari, fjármagni, markaðsaðgengi, umgjörð og mannauði. Ljóst er að mikil fjármögnunartækifæri eru fyrir íslenska frumkvöðla og rannsóknaraðila á vettvangi Evrópusambandsins og mikilvægt að halda þeim á lofti.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

9. Nýsköpun og uppbygging

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta