Reglugerð varðandi eignaskiptayfirlýsingar fyrir hesthús
Félagsmálaráðherra hefur gefið út reglugerð nr. 1110/2007, um breytingu á reglugerð um eignaskiptayfirlýsingar, útreikning hlutfallstalna o.fl. í fjöleignarhúsum, nr. 910/2000. Með reglugerð þessari hafa nú verið settar reglur um hvernig reikna skuli hlutfallstölur vegna mismunandi eignarhluta í hesthúsum. Er um einstök atriði vísað til reglugerðarinnar.
Reglugerð nr. 1110/2007 um breytingu á reglugerð nr. 910/2007 (PDF, 178KB)
Reglugerð um eignaskiptayfirlýsingar, útreikning hlutfallstalna o.fl. í fjöleignarhúsum nr. 910/2000