Niðurstaða úthlutunar á ESB tollkvótum á landbúnaðarafurðum fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2023
Laugardaginn 19. nóvember sl. rann út tilboðsfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarafurðum frá Evrópusambandinu samkvæmt reglugerð nr. 1150/2022 fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2023. Útboðsverð tollkvóta ræðst af lægsta samþykkta tilboði í hverjum vörulið, þ.e. jafnvægisverði. Tilboð eru samþykkt frá hæsta boði til þess lægsta innan þess magns tollkvóta sem í boði er. Samtals bárust 26 gild tilboð í tollkvótann.
Nautgripakjöt í vörulið 0201/0202. Sautján tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á nautgripakjöti, samtals 1.704.051 kg. á meðalverðinu 282 kr./kg. Hæsta boð var 1.040 kr./kg. en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá tíu fyrirtækjum um innflutning á 348.000 kg. á jafnvægisverðinu 690 kr./kg.
Svínakjöt í vörulið 0203. Þrettán tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á svínakjöti, samtals 1.760.000 kg. á meðalverðinu 229 kr./kg. Hæsta boð var 769 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá fjórum fyrirtækjum um innflutning á 350.000 kg. á jafnvægisverðinu 553 kr./kg.
Alifuglakjöt, í vörulið 0207. Sextán tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á alifuglakjöti, samtals 2.284.030 kg á meðalverðinu 294 kr./kg. Hæsta boð var 700 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá sjö fyrirtækjum um innflutning á 428.000 kg á jafnvægisverðinu 620 kr./kg.
Alifuglakjöt lífrænt ræktað/lausagöngu, í vörulið ex0207. Ellefu tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á alifuglakjöti, lífrænt ræktað/lausagöngu, samtals 450.000 kg á meðalverðinu 198 kr./kg. Hæsta boð var 557 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 100.000 kg á jafnvægisverðinu 507 kr./kg.
Kjöti og ætir hlutar af dýrum, saltað í saltlegi, þurrkað eða reykt;... í vörulið 0210. Fjórtán tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á kjöti og ætum hlutum af dýrum, saltað í saltlegi, þurrkað eða reykt;..., samtals 233.000 kg. á meðalverðinu 180 kr./kg. Hæsta boð var 711 kr./kg. en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá átta fyrirtækjum um innflutning á 50.000 kg. á jafnvægisverðinu 300 kr./kg.
Ostar og ystingur í vörulið 0406. Fimmtán tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á ostum og ystingi á vörulið 0406, samtals 753.900 kg. á meðalverðinu 349 kr./kg. Hæsta boð var 1.011 kr./kg. en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá níu fyrirtækjum um innflutning á 190.000 kg. á jafnvægisverðinu 840 kr./kg.
Ostur og ystingur úr vörulið ex0406 (**). Fimmtán umsóknir bárust um tollkvóta vegna innflutnings á ostum og ystingi úr vörulið ex 0406 (**), samtals 872.000 kg. Á grundvelli 5. gr. reglugerðar nr. 1150/2022 er tollkvóta úr vörulið ex0406 úthlutað með hlutkesti og er hámark úthlutunar til hvers fyrirtækis 15% af heildarmagni tollkvótans. Samtals var úthlutað 115.000 kg., til tíu fyrirtækja.
(**) skráð í samræmi við reglugerð ráðsins (EB) nr. 1151/2012 um vernd landfræðilegra merkinga og uppruna landbúnaðarafurða og matvæla.
Pylsur og þess háttar vörur úr kjöti.... í vörulið 1601. Fimmtán tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á pylsum og þess háttar vörum úr kjöti.... úr vörulið 1601, samtals 548.800 kg. á meðalverðinu 94 kr./kg. Hæsta boð var 704 kr./kg. en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá níu fyrirtækjum um innflutning á 125.000 kg. á jafnvægisverðinu 270 kr./kg.
Annað kjöt...., unnið eða varið skemmdum-... í vörulið 1602. Átján tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á öðru kjöti..., á vörulið 1602, samtals 1.148.200 kg. á meðalverðinu 271 kr./kg. Hæsta boð var 906 kr./kg. en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá tíu fyrirtækjum um innflutning á 200.000 kg. á jafnvægisverðinu 700 kr./kg.
Matvælaráðuneytið hefur úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða og/eða umsókna þeirra:
Kjöt af nautgripum, nýtt, kælt eða fryst, 0201/0202
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
100.000 |
Ekran ehf. |
35.000 |
Esja Gæðafæði ehf |
4.000 |
Garri ehf. |
30.000 |
Innnes ehf. |
24.000 |
Kjötmarkaðurinn ehf. |
20.000 |
Krónan ehf |
100.000 |
LL42 ehf |
15.000 |
Red-Food ehf |
10.000 |
OJK-Ísam ehf |
10.000 |
Samkaup hf. |
Svínakjöt, nýtt, kælt eða fryst, 0203
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
20.000 |
Krónan ehf |
6.000 |
Kjötmarkaðurinn ehf |
180.000 |
LL42 hf |
144.000 |
Mata hf. |
Kjöt af alifuglum, nýtt, kælt eða fryst, 0207
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
46.000 |
Aðföng |
17.000 |
Danól ehf |
80.000 |
Innnes ehf |
140.000 |
LL42 ehf. |
120.000 |
Mata hf. |
20.000 |
OJK – ÍSAM ehf. |
5.000 |
Red Food |
Kjöt af alifuglum nýtt, kælt eða fryst, lífrænt ræktað/lausagöngu ex0207
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
95.000 |
Ekran ehf |
5.000 |
Red-Food ehf |
Kjöt og ætir hlutar af dýrum.. 0210
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
10.000 |
Aðföng |
10.000 |
Ekran ehf. |
6.000 |
Innnes ehf. |
17.000 |
Krónan ehf. |
1.277 |
LL42 ehf |
32 |
Mata ehf |
4.191 |
OJK-Ísam ehf |
1.500 |
Samkaup hf |
Ostur og ystingur 0406
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
20.500 |
Aðföng |
5.000 |
Garri ehf |
60.000 |
Innnes ehf. |
29.000 |
Krónan ehf. |
1.000 |
Mata ehf. |
2.000 |
Mini Market ehf |
10.000 |
Mjólkursamsalan |
60.000 |
Nathan & Olsen ehf. |
2.500 |
OKJ-Ísam ehf |
Ostur og ystingur ex 0406 Úthlutun gerð á gr.v. 5. gr. reglugerðar nr. 301/2022
Úthlutað magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
17.250 |
Aðföng |
17.250 |
Dalsnes ehf. |
1.000 |
Esja – Gæðafæði ehf |
8.750 |
Krónan ehf. |
17.250 |
LL42 ehf. |
3.000 |
Market ehf. |
17.250 |
Mata hf |
1.000 |
Mini Market ehf. |
15.000 |
OJK-Ísam ehf. |
17.750 |
Stjörnugrís ehf. |
Pylsur og þess háttar vörur 1601
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
7.000 |
Aðföng |
15.000 |
Ekran ehf |
500 |
Filipino Store ehf. |
3.000 |
Innnes ehf. |
9.000 |
Krónan ehf |
30.000 |
Market ehf. |
50.000 |
Mini market ehf. |
8.000 |
OJK – ÍSAM ehf |
2.500 |
Samkaup hf. |
Annað kjöt, hlutar úr dýrum-.... 1602
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
21.381 |
Aðföng |
15.000 |
Ekran ehf |
10.000 |
Esja Gæðafæði ehf. |
15.000 |
Garri ehf |
100.000 |
Innnes ehf. |
20.000 |
Krónan ehf |
10.000 |
Mini Market ehf. |
1.974 |
OJK-Ísam ehf |
1.645 |
Samkaup hf. |
5.000 |
Stjarnan ehf |
Reykjavík, 28. nóvember 2022
Matvælaráðuneytinu