Hoppa yfir valmynd
4. júní 2010 Innviðaráðuneytið

Strandsiglingar eru taldar álitlegur kostur

Strandsiglingar eru álitlegur kostur, nægilegir flutningar virðast vera fyrir hendi, þær henta ákveðnum vöruflokkum, áhugi er hjá kaupendum slíkrar þjónustu og flutningsgjöld eru samkeppnishæf við landflutninga.

Hagkvæmni strandflutninga - forsíða skýrslu
Hagkvæmni strandflutninga - forsíða skýrslu

Þetta er meðal niðurstaðna í skýrslu starfshóps sem Kristján L. Möller, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, skipaði til að meta hagkvæmni strandflutninga við Ísland. Formaður starfshópsins var Thomas Möller og í honum sátu einnig Auður Eyvinds frá Vegagerðinni og Kristján Helgason frá Siglingastofnun. Einnig starfaði Sigurður Örn Guðleifsson, lögfræðingur í ráðuneytinu, með hópnum. Þá aðstoðuðu nemendur í flutningafræðum við Háskólann í Reykjavík við gagnaöflun og gerð siglingaáætlana.

Í skýrslunni er stutt samantekt úr nokkrum fyrri skýrslum um innanlandsflutninga og settar eru fram áætlanir um flutningsmagn og mögulega viðskiptavini. Þá er sett upp kostnaðaráætlun, fjallað um umhverfisáhrif, skipategundir og stillt upp þremur valkostum um siglingaáætlun:

  • Kostur 1 gerir ráð fyrir siglingu kringum landið sem tæki fimm daga.
  • Kostur 2 snýst um siglingu milli Reykjavíkur og Akureyrar viðkomu á Ísafirði. Hugsanlega væri einnig komið við á Sauðárkróki og Patreksfirði og tæki þessi hringur einnig vinnuviku miðað við að skipið hefði helgarbið á Akureyri sem væri heimahöfn þess.
  • Kostur 3 gerir ráð fyrir áætlun milli Reykjavíkur og Ísafjarðar sem unnt væri að sigla tvisvar í viku.

Af þessum kostum telur starfshópurinn kost 2 álitlegastan miðað við flutninga og þjónustu en gert er ráð fyrir að notað verði skip sem tekur 180 til 230 tuttugu feta gámaeiningar. Heildarkostnaður skips og reksturs sem tengist því er ráðgerður 884 milljónir króna.

Þá er í skýrslunni bent á að stjórnvöld víða um heim vinni nú að því að færa flutninga af vegum á sjó, fljótabáta og járnbrautir. Bent hefur verið á að raunverulegur samfélagslegur kostnaður við landflutninga sé oft vanmetinn hvað varði slit á vegum, slysahættu, mengun og önnur umhverfisáhrif.

Í skýrslunni er einnig bent á möguleg næstu skref sem er að kynna skýrsluna meðal hagsmunaaðila, gera ítarlega rekstraráætlun og að atvinnuþróunarfélögum á landinu verði falið að gera markaðsrannsóknir þar sem metin væri raunveruleg flutningaþörf og áhugi á sjóflutningum, svo og að kanna vilja hafnaryfirvalda til breytinga á gjaldskrám til að efla samkeppnishæfni strandsiglinga.

Skýrsla um strandsiglingar kynnt.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta