Hoppa yfir valmynd
5. janúar 2021 Matvælaráðuneytið

Ráðherra gerði grein fyrir stöðu loðnuleitar

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra - mynd

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, gerði á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun grein fyrir stöðu loðnuleitar. Vísaði ráðherra til þess í gær fóru bæði rannsóknaskip Hafrannsóknastofnunar ásamt þremur uppsjávarskipum til mælinga á loðnustofninum. Rannsóknaskipið Árni Friðriksson mun hefja mælingar út af Vestfjörðum en rs. Bjarni Sæmundsson mun leita og mæla á grunnslóð út af Norðurlandi.  Uppsjávarskipin Aðalsteinn Jónsson, Ásgrímur Halldórsson og Polar Amarok munu leita út af Austfjörðum, Norðausturlandi og djúpt út af norðanverðu landinu. Alls eru um 20 sérfræðingar Hafrannsóknastofnunar um borð í skipunum auk sjómanna skipanna. Því eru um 75-80 manns sem koma beint að verkefninu á hafi úti.

 

Í samræmi við breytingatillögu fyrir 3. umræðu var í fjárlögum ársins 2021 ákveðið að Hafrannsóknastofnun fái 120 milljón króna aukaframlag til rannsókna og leitar að loðnu enda skiptir það miklu fyrir viðspyrnu efnahagslífsins að loðna veiðist í vetur. Hafrannsóknastofnun hefur gert samninga við útgerðir uppsjávarskipa um þátttöku í mælingum á loðnu í janúar og febrúar og gerir aukaframlagið það að verkum að hægt verður sinna mælingum með mörgum skipum og á þann hátt fá niðurstöður fáist á stuttum tíma þegar aðstæður á miðunum leyfa.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin
14. Líf í vatni
15. Líf á landi

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta