Framlög úr ríkissjóði til stjórnmálasamtaka 2017
Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur tekið saman upplýsingar um greiðslur ríkisins til stjórnmálasamtaka fyrir árið 2017.
Um framlögin gilda lög nr. 162/2006 um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra.Greiðslur til stjórnmálasamtaka eru samkvæmt ákvörðun fjárlaga hverju sinni. Stjórnmálasamtök sem hafa fengið a.m.k. einn mann kjörinn á þing eða náð að lágmarki 2,5% atkvæða eiga rétt til framlaga. Það framlag skiptist hlutfallslega milli flokka eftir atkvæðamagni í næstliðnum kosningum.
Greiðslur eftir alþingiskosningar árið 2013 fyrir árið 2017 koma fram hér að neðan.
Skipting atkvæða í Alþingiskosningunum 2013 (Upplýsingar frá Hagstofu Íslands)
Greidd atkvæði alls 193.822
Gild atkvæði alls 188.995
Auðir seðlar 4.217
Ógildir seðlar 610
Styrkir til stjórnmálasamtaka árið 2017:
Björt framtíð (A) 20.938.113
Framsóknarflokkur (B) 33.604.607
Viðreisn (C) 30.640.764
Sjálfstæðisflokkur (D) 84.801.052
Flokkur fólksins (F) 10.342.607
Píratar (P) 42.354.264
Samfylkingin (S) 16.799.220
Vinstrihreyfingin - grænt framboð (V) 46.519.373
Alls: 286.000.000