Hoppa yfir valmynd
22. nóvember 2021 Matvælaráðuneytið

Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá ríkjum Evrópusambandsins

 

Með vísan til samnings milli Íslands og Evrópusambandsins um viðskipti með landbúnaðarvörur á grundvelli 19. gr. EES-samningsins og til reglugerðar nr. 1296/2021 um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá ríkjum Evrópusambandsins, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutning á landbúnaðarvörum, upprunnum í ríkjum Evrópusambandsins og með upprunavottorð þaðan fyrir tímabilið 1. janúar – 30. apríl 2022:

 

Vöruliður:

Vara

Tímabil

Vörumagn

Verðtollur

Magntollur

kg

%

kr./kg

0201/0202

Kjöt af dýrum af nautgripakyni, nýtt, kælt eða fryst

01.01. - 30.04.22

232.000

0

0

0203

Svínakjöt, nýtt, kælt eða fryst

01.01. - 30.04.22

233.000

0

0

0207

Kjöt af alifuglum, nýtt, kælt eða fryst

01.01. - 30.04.22

285.000

0

0

ex0207

Kjöt af alifuglum, nýtt, kælt eða fryst, lífrænt ræktað/lausagöngu

01.01. - 30.04.22

67.000

0

0

0210

Kjöt og ætir hlutar af dýrum, saltað, í saltlegi, þurrkað eða reykt; ætt mjöl, einnig finmalað, úr kjöti eða hlutum af dýrum

01.01. - 30.04.22

33.000

0

0

ex 0406

Ostur og ystingur (**)

01.01. - 30.04.22

77.000

0

0

0406

Ostur og ystingur

01.01. - 30.04.22

127.000

0

0

1601

Pylsur og þess háttar vörur úr kjöti, hlutum af dýrum eða blóði; matvæli gerð aðallega úr þessum vörum

01.01. - 30.04.22

83.000

0

0

1602

Annað kjöt, hlutar af dýrum eða blóð, unnið eða varið skemmdum

01.01. - 30.04.22

133.000

0

0

 

(**) skráð í samræmi við reglugerð ráðsins (EB) nr. 1151/2012 um vernd landfræðilegra merkinga og uppruna landbúnaðarafurða og matvæla

 

Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, verður leitað tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar. Berist umsóknir um meira magn innflutnings vara úr vörulið ex 0406(**) en auglýstum tollkvóta nemur verður tollkvótanum úthlutað eftir hlutkesti. Úthlutun er ekki framseljanleg. Vörumagni vegna ársins 2022 er úthlutað í þrennu lagi, þ.e. því er skipt upp í 1/3 hluta fyrir hvert tímabil ársins.

Umsóknar- og tilboðsferli vegna úthlutunar tollkvótans fer fram með rafrænum hætti á vefkerfinu tollkvoti.is. Nýskráning notenda í vefkerfið fer fram hjá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Ef óskað er eftir nýskráningu notenda skal hafa samband við ráðuneytið í síma 545-9700 eða á [email protected]. Sjá eftirfarandi ítarefni vegna úthlutunar tollkvóta:

Leiðbeiningar tollkvoti.is 

Vefkerfi fyrir úthlutun tollkvóta landbúnaðarvar

Opnað verður fyrir umsóknir á tollkvoti.is; mánudaginn 22. nóvember 2021 og skulu umsóknir berast fyrir kl. 23.59, mánudaginn 29. nóvember 2021.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu,

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

15. Líf á landi

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta