Hoppa yfir valmynd
11. febrúar 2021 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 509/2020 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 509/2020

Fimmtudaginn 11. febrúar 2021

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 13. október 2020, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 30. september 2020, um að synja umsókn hennar um greiðslur atvinnuleysisbóta.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi þáði greiðslur atvinnuleysisbóta frá Vinnumálastofnun á tímabilinu 4. júní 2020 til 31. júlí 2020. Með umsókn, dags. 1. september 2020, sótti kærandi á ný um atvinnuleysisbætur. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 30. september 2020, var umsókn kæranda synjað á þeirri forsendu að starfshlutfall væri hærra en útreiknað tryggingarhlutfall. Kærandi fór fram á endurskoðun á þeirri ákvörðun með vísan til þess að hún væri ekki lengur í hlutastarfi. Við endurskoðun málsins kom í ljós að kærandi hafði ekki heimild til að ráða sig til vinnu á Íslandi án takmarkana. Umsókn kæranda var því synjað með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 15. október 2020, á grundvelli d-liðar 13. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Þá var kæranda tilkynnt með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 9. nóvember 2020, að henni bæri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabilið 4. júní til 31. júlí 2020, samtals að fjárhæð 113.075 kr.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála þann 13. október 2020. Með bréfi, dags. 16. október 2020, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 24. nóvember 2020 og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 4. desember 2020. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að umsókn hennar um atvinnuleysisbætur hefði verið synjað á þeirri forsendu að hún væri í 60% starfshlutfalli. Kærandi hafi hins vegar misst starf sitt í lok ágúst 2020 en sú staðfesting hafi ekki legið fyrir við ákvörðun Vinnumálastofnunar.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að mál kæranda snúi að því hvort hún hafi uppfyllt skilyrði d-liðar 1. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar um að hafa heimild til að ráða sig til vinnu hér á landi án takmarkana. Í athugasemdum í greinargerð með frumvarpi því er varð að lögum nr. 54/2006 segi meðal annars um 13. gr. laganna:

„Áfram verður gert skilyrði um ótakmarkaða heimild til að ráða sig til starfa hér á landi. Þar er um að ræða íslenska ríkisborgara og þá sem hafa leyfi til að starfa á innlendum vinnumarkaði án takmarkana eða hafa verið undanþegnir kröfu um sérstök leyfi til að starfa hér samkvæmt íslenskum lögum.“

Samkvæmt framangreindu séu það íslenskir ríkisborgarar og útlendingar sem hafi heimild til að ráða sig til vinnu án takmarkana hérlendis sem geti átt rétt til atvinnuleysisbóta á grundvelli laga um atvinnuleysistryggingar. Þeir sem séu undanþegnir kröfu um atvinnuleyfi geti einnig talist tryggðir samkvæmt lögunum. Það fari því eftir þeim lögum og reglum sem gildi hverju sinni um atvinnuréttindi útlendinga hvort útlendingur teljist hafa heimild til að ráða sig án takmarkana hér á landi í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.

Í lögum nr. 97/2002 og reglugerð nr. 339/2005 um atvinnuréttindi útlendinga sé fjallað um atvinnuréttindi útlendinga. Í 22. gr. laga nr. 97/2002 séu taldir upp þeir aðilar sem séu undanþegnir kröfu um atvinnuleyfi. Þeir séu ríkisborgarar í aðildarríkjum samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, útlendingar sem hafa verið íslenskir ríkisborgarar frá fæðingu en hafa misst ríkisborgararétt sinn, erlendir makar íslenskra ríkisborgara og börn þeirra, útlendingar í einkaþjónustu sendimanna erlendra ríkja, útlendingar sem hafa fengið dvalarleyfi á grundvelli alþjóðlegrar verndar eða hafa fengið útgefið ótímabundið dvalarleyfi. Á þeim tíma sem kærandi hafi þegið greiðslur atvinnuleysisbóta hafi hún hvorki verið undanþegin kröfu um atvinnuleyfi samkvæmt 22. gr. laganna né fengið útgefið óbundið atvinnuleyfi á grundvelli 17. gr. laganna. Þegar kærandi hafi sótt um atvinnuleysibætur hjá Vinnumálastofnun þann 4. júní 2020 hafi hún fengið ranglega greiddar atvinnuleysisbætur og stofnunin hafi talið hana uppfylla skilyrði a-liðar 22. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga og þar með d-lið 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Við úrvinnslu síðari umsóknar kæranda um atvinnuleysisbætur þann 1. september 2020 hafi stofnunin hins vegar kannað heimild hennar til dvalar og atvinnu hér á landi. Þá hafi komið í ljós að kærandi dvelji hér á landi á grundvelli tímabundins dvalarleyfis á grundvelli náms, sbr. 65. gr. laga nr. 80/2016, og þurfi því tímabundið atvinnuleyfi til starfa hér á landi, sbr. 13. gr. laga nr. 97/2002 um atvinnuréttindi útlendinga. Kærandi hafi því ekki átt rétt á greiðslum atvinnuleysistrygginga þann tíma sem hún hafi þegið greiðslur.

Þar sem kærandi hafi ranglega fengið greiddar atvinnuleysisbætur án þess að eiga rétt til þeirra hafi Vinnumálastofnun tekið þá ákvörðun að krefja kæranda um endurgreiðslu á ofgreiddum atvinnuleysisbótum sem hún hafi fengið á tímabilinu 4. júní 2020 til 31. júlí 2020. Sú ákvörðun grundvallist á 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 en í ákvæðinu segi að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur en hann hafi átt rétt á beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem hafi verið ofgreidd. Samkvæmt ákvæðinu sé Vinnumálastofnun skylt að leiðrétta fjárhæð atvinnuleysisbóta og innheimta þær atvinnuleysisbætur sem hafi verið ofgreiddar. Það hafi verið mat stofnunarinnar að ekki skyldi innheimta álag vegna ofgreiðslna til kæranda.

Með vísan til alls ofangreinds sé það afstaða Vinnumálastofnunar að réttilega hafi verið staðið að ákvörðun í máli kæranda og að henni beri að endurgreiða stofnuninni ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð kr. 133.075 kr.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að synja umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur á þeirri forsendu að starfshlutfall hennar væri hærra en útreiknað tryggingarhlutfall. Eftir að kæra barst úrskurðarnefndinni tók Vinnumálastofnun mál kæranda til endurskoðunar og var umsókn hennar synjað á þeirri forsendu að hún hefði ekki heimild til að ráða sig til vinnu hér á landi án takmarkana, sbr. d-lið 13. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Þá fór Vinnumálastofnun fram á að kærandi endurgreiddi ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabilið 4. júní 2020 til 31. júlí 2020, samtals að fjárhæð 113.075 kr. Verður málið tekið til úrlausna á þeim grundvelli til hagsbóta fyrir kæranda.

Í 1. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er fjallað um almenn skilyrði þess að vera tryggður samkvæmt lögunum. Eitt af þeim skilyrðum er að hafa heimild til að ráða sig til vinnu hér á landi án takmarkana, sbr. d-lið 1. mgr. 13. gr. Samkvæmt gögnum málsins er kærandi með dvalarleyfi hér á landi á grundvelli 65. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga eða vegna náms. Kærandi er því með tímabundið atvinnuleyfi til starfa hér á landi á grundvelli 13. gr. laga nr. 97/2002 um atvinnuréttindi útlendinga. Skilyrði d-liðar 1. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 um heimild til að ráða sig til vinnu hér á landi án takmarkana er því ekki uppfyllt í máli kæranda. Það lá ekki fyrir þegar kærandi þáði greiðslur atvinnuleysisbóta á tímabilinu 4. júní 2020 til 31. júlí 2020.

Í 39. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um leiðréttingu á atvinnuleysisbótum. Þar segir í 2. mgr. að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum, beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Í athugasemdum með frumvarpi því er varð að lögum nr. 54/2006 segir meðal annars svo í skýringum við ákvæðið:

„Efni ákvæðisins felur í sér möguleika á leiðréttingu á fjárhæð tekjutengdra atvinnuleysisbóta eftir að þær hafa verið keyrðar saman við álagningu skattyfirvalda að því er varðar það viðmiðunartímabil sem lagt er til að verði haft til hliðsjónar við útreikningana. Er því gert ráð fyrir að Vinnumálastofnun hafi heimildir til að leiðrétta fjárhæð atvinnuleysisbótanna til samræmis við álagningu skattyfirvalda. Er gert ráð fyrir að leiðréttingin geti átt sér stað nokkru eftir að bæturnar hafa verið greiddar eða þegar endanleg álagning skattyfirvalda liggur fyrir. Á sama hátt er jafnframt gert ráð fyrir að Vinnumálastofnun geti leiðrétt fjárhæð grunnatvinnuleysisbóta. Slíkt getur átt við þegar upplýsingar þær er liggja grunnatvinnuleysisbótum til grundvallar hafa verið rangar eða hinn tryggði ekki tilkynnt til Vinnumálastofnunar um að hann sé ekki lengur í atvinnuleit.

Þannig er gert ráð fyrir að hinn tryggði endurgreiði Atvinnuleysistryggingasjóði þær fjárhæðir sem ofgreiddar eru í þeim tilvikum er hann fékk hærri greiðslur úr sjóðnum en honum bar. Á þetta við um öll tilvik sem kunna að valda því að hinn tryggði hafi fengið ofgreitt úr Atvinnuleysistryggingasjóði.“

Samkvæmt framangreindu er ákvæði 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur fyrir tímabil sem skilyrði laganna er ekki uppfyllt. Í máli þessu hefur ekkert álag verið lagt á skuld kæranda og því er ekki ágreiningur um það atriði. Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.

 

 

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að synja umsókn A, um atvinnuleysisbætur og að innheimta ofgreiddar bætur, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta