Breyting á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir í samráðsferli
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um frumvarp vegna breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir. Með breytingunni fá stjórnvöld heimild til að leggja á stjórnvaldssektir vegna brota á lögunum sem og lögum um meðhöndlun úrgangs.
Frumvarpinu er ætlað að tryggja eins og frekast er unnt að ekki sé hægt að hagnast á því að fara ekki að umræddum lögum. Ekki þykir rétt að öll brot varði viðurlögum sem ákveðin eru af dómstólum. Með því að taka upp stjórnvaldssektir er betur tryggt að lögum verði framfylgt.
Í frumvarpinu er einnig lagt til að skil rekstraraðila á umhverfisupplýsingum um losun frá atvinnurekstrinum og hráefnanotkun verði einfölduð með því að samþætta skil á grænu bókhaldi og útstreymisbókhaldi. Lagt er til að rekstraraðilar geti skilað framangreindum upplýsingum til Umhverfisstofnunar með rafrænum hætti.
Þá er lagt til að Umhverfisstofnun hafi heimild til að framlengja gildistíma starfsleyfis á meðan nýtt starfsleyfi er í vinnslu. Þörf getur verið á slíkri heimild t.d. ef óviðráðanlegar tafir verða í umsóknarferlinu og eldra starfsleyfi rennur út áður en unnt er að gefa út endurnýjað starfsleyfi.
Þá er lögð til breyting á fyrirkomulagi við ráðningar framkvæmdastjóra heilbrigðiseftirlits og starfsmanna þess. Í frumvarpinu er lagt til að heilbrigðisnefndir á hverju eftirlitssvæði ráði framkvæmdastjóra heilbrigðiseftirlits og setji honum starfslýsingu. Þá er lagt til það nýmæli að framkvæmdastjóri heilbrigðiseftirlits ráði til starfa aðra starfsmenn heilbrigðiseftirlitsins í stað heilbrigðisnefndar áður. Jafnframt er lagt til að starfsheitið heilbrigðisfulltrúi verði lagt niður og ekki verði þörf á leyfi ráðherra til að starfa sem heilbrigðisfulltrúi eða starfsmaður heilbrigðiseftirlits. Að lokum er lagt til að heilbrigðisnefnd geti ákveðið að fela framkvæmdastjóra heilbrigðiseftirlits og starfsmönnum þess heimild til ákvarðanatöku í einstökum málaflokkum sem undir heilbrigðisnefnd heyrir og henni er ætlað að sinna samkvæmt lögunum og reglugerðum settum samkvæmt þeim.
Auk annarra breytinga á lögum eru í frumvarpinu lagðar til nokkrar breytingar á orðalagi ákvæða laga um hollustuhætti og mengunarvarnir um þvingunarúrræði. Einnig er kveðið á um hámarksfjárhæð dagsekta og að þær falli ekki niður þrátt fyrir að málsaðili uppfylli skyldur sínar síðar.
Óskað er eftir því að athugasemdir við frumvarpsdrögin berist í samráðsgátt Stjórnarráðsins eigi síðar en 26. nóvember nk.
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir (stjórnvaldssektir o.fl.) á Samráðsgátt