Hoppa yfir valmynd
25. febrúar 2009 Heilbrigðisráðuneytið

Víðtækt samráð um lausnir

Heilbrigðisráðherra hefur skipað vinnuhóp sem hefur það hlutverk að útfæra hugmynd hans um samhæfingu Landspítala og Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.

Þetta kom fram hjá heilbrigðisráðherra á Alþingi í dag þegar hann svaraði fyrirspurn um málið frá Björk Guðjónsdóttur, Sjálfstæðisflokki. Ráðherra sagðist leggja sérstaka áherslu á að kalla til viðræðna bæði fagfólk en ekki síður fulltrúa þessara almannasamtaka og átti þar við Hollvinasamtök HSS, en ráðherra kallaði einmitt Hollvinasamtök St. Jósefsspítala til vegna samhæfingar þess spítala við LSH. Þá leggur ráðherra áherslu á að fulltrúi frá Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum sé í nefndinni enda hefur HSS þjónað svæðinu öllu. Nefndinni er gert að skila útfærslu sinni 16. mars nk.

Fram kom í umræðunum á Alþingi í dag að heilbrigðisráðherra, og forveri hans í embætti, að offramboð væri á skurðstofuaðstöðu á S-Vesturhorni landsins.

Nefnd til að útfæra ákvörðun ráðherra um að samhæfa starfsemi Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja og Landspítala.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta