Hoppa yfir valmynd
9. júní 2016 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 16/2016

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 16/2016

Fimmtudaginn 9. júní 2016

A

gegn

Vinnumálastofnun


Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Arnar Kristinsson lögfræðingur og Agnar Bragi Bragason lögfræðingur.

Með kæru, móttekinni þann 14. janúar 2016, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 18. nóvember 2015, um að staðfesta fyrri ákvörðun um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hans þar til hann hefur starfað í að minnsta kosti tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði og innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 57.923 kr. að meðtöldu 15% álagi.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 2. febrúar 2015 og var umsókn hans samþykkt.

Með bréfi, dags. 1. september 2015, var kæranda tilkynnt um að við samkeyrslu tölvugagna Vinnumálastofnunar og ríkisskattstjóra hafi virst sem kærandi hafi haft tekjur í X frá B að fjárhæð 166.214 kr. án þess að gera grein fyrir þeim, á sama tíma og hann hafi þegið atvinnuleysisbætur frá Vinnumálastofnun. Þá var óskað eftir skýringum kæranda á framangreindum tekjum. Engar athugasemdir bárust frá kæranda samkvæmt samskiptasögu kæranda.

Með bréfi, dags. 25. september 2015, var kæranda tilkynnt um að stofnunin hefði ákveðið að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hans á grundvelli 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og að hann skyldi ekki eiga rétt á atvinnuleysisbótum fyrr en hann hefði starfað í að minnsta kosti tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði þar sem hann hafi verið að vinna hjá B samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur án þess að tilkynna Vinnumálastofnun um vinnuna. Þá var kærandi krafinn um endurgreiðslu ofgreiddra atvinnuleysisbóta samtals að fjárhæð 57.923 kr. að meðtöldu 15% álagi á grundvelli 2. mgr. 39. gr. laganna.

Með tölvubréfi kæranda til Vinnumálastofnunar, dags. 13. nóvember 2015, tjáði kærandi stofnuninni að honum hefði yfirsést að tilkynna stofnuninni um vinnu sína. Hann hafi ekki vitað af umræddum reglum. Hann hafi unnið X vinnudaga í þeim mánuði sem hann hafi unnið og tilkynnt um vinnuna eftir á. Var mál hans í kjölfarið tekið fyrir aftur. Var kæranda tilkynnt sú ákvörðun Vinnumálastofnunar að staðfesta fyrri ákvörðun með bréfi, dags. 18. nóvember 2015.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála þann 14. janúar 2016. Með bréfi, dags. 26. janúar 2016, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 22. febrúar 2016. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 8. mars 2016, var greinargerð Vinnumálastofnunar send kæranda til kynningar. Frekari athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru kæranda kemur fram að hann mótmæli hinni kærðu ákvörðun og af henni má ráða að hann krefjist þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi.

Í kærunni kemur fram að kærandi hafi verið atvinnulaus X daga í X. Í lok þess mánaðar hafi verið hringt í hann og honum boðið að mæta til vinnu sama kvöld á næturvakt og hafi honum verið boðið starf sem hann hafi áður verið í. Hann hafi verið settur á næturvaktir, frá sjö á kvöldin til sjö á morgnanna. Stuttur opnunartími afgreiðslu Vinnumálastofnunar frá kl. 8:00 til 15:00 hafi ekki einfaldað málið fyrir honum. Hann hafi haldið að það væri ekki dagaspursmál að tilkynna atvinnu.

Fyrir þessa X daga vinnu hjá Bhafi hann fengið 53.000 kr. en samkvæmt hans útreikningum hafi hann fengið um það bil 10.000 krónur frá Vinnumálastofnun fyrir þessa sömu daga sem hann hafi alltaf ætlað sér að endurgreiða.

Hann hafi nú kynnt sér betur reglur Vinnumálastofnunar en umskiptin hafi verið svo hröð að erfitt hafi verið að sinna tilkynningarskyldunni. Hann hafi verið mjög ánægður með að fá vinnu og hafi búist við því að stofnunin væri einnig jákvæð fyrir sína hönd. Hann hafi óafvitandi brotið gegn tilkynningarskyldu sinni gagnvart stofnuninni. Kærandi telur að við töku hinnar kærðu ákvörðunar hafi ekki verið gætt meðalhófs og að hans mati hafi þrír mánuðir verið eðlilegri refsing miðað við alvarleika brotsins.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að samkvæmt 60. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sé gert ráð fyrir því að Vinnumálastofnun beiti viðurlögum á grundvelli ákvæðsins ef atvinnuleitandi starfi á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann fái greiddar atvinnuleysisbætur án þess að tilkynna stofnuninni um að atvinnuleit sé hætt samkvæmt 35. gr. a eða 10. gr. laganna.

Í málinu liggi fyrir að kærandi hafi starfað hjá B á sama tíma og hann hafi þegið greiðslur atvinnuleysisbóta. Samkvæmt upplýsingum frá ríkisskattstjóra hafi kærandi fengið greiddar 166.214 kr. fyrir vinnu sína þann mánuðinn. Kærandi hafi haldið áfram störfum sínum hjá fyrirtækinu að minnsta kosti í X.

Óumdeilt sé að kærandi hafi verið við vinnu á sama tíma og hann hafi verið skráður atvinnulaus, án þess að hafa tilkynnt það til stofnunarinnar. Í kæru sinni til úrskurðarnefndarinnar segi kærandi að hann hafi verið kallaður til vinnu með skömmum fyrirvara. Þá segi kærandi að opnunartími Vinnumálastofnunar hafi gert honum erfitt að tilkynna um vinnu til stofnunarinnar. Stofnunin fallist ekki á þessar skýringar kæranda. Ljóst sé að kærandi hafi ekki tilkynnt um vinnu sínu. Vinnumálastofnun hafi fyrst orðið kunnungt um vinnu kæranda við reglubundna samkeyrslu við ríkisskattstjóra. Þegar Vinnumálastofnun hafi leitað skýringa frá kæranda hafi honum gefist um þrír mánuðir til að tilkynna um störf sín til stofnunarinnar. Ekki verði séð að venjubundinn opnunartími stofnunarinnar hafi getað hamlað kæranda að tilkynna um starf sitt. Atvinnuleitendur geti tilkynnt um vinnu sína með margs konar hætti meðal annars með símtali í þjónustuver, tölvupósti til stofnunarinnar, á þeirra eigin vefsvæði á vefsíðu Vinnumálastofnunar og með komu á þjónustuskrifstofu. Ekki verði fallist á að kæranda hafi verið ómögulegt að tilkynna um vinnu sína.

Í ljósi afdráttarlausrar verknaðarlýsingar 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og þeirrar skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til að tilkynna um tilfallandi vinnu til Vinnumálstofnunar, sbr. 35. gr. a sömu laga, verði að telja að kærandi hafi brugðist skyldum sínum. Kæranda beri því að sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins. Vinnumálastofnun telji sér ekki heimilt að fallast á athugasemdir kæranda um að stofnunin hafi átt að beita öðrum vægari viðurlögum í málinu. Í 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram hver viðurlög við broti samkvæmt ákvæðinu skuli vera. Stofnuninni sé ekki heimilt að víkja frá skýru ákvæði laga um atvinnuleysistryggingar.

Ný umsókn frá kæranda hafi borist Vinnumálastofnun þann 30. september 2015 eða einungis fimm dögum frá dagsetningu viðurlagaákvörðunar. Ljóst sé því að kærandi uppfylli ekki þær kröfur sem 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar geri til þeirra sem sætt hafi viðurlögum á grundvelli ákvæðisins. Þar sem kærandi hafi ekki starfað í að minnsta kosti tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði frá því að sú viðurlagaákvörðun hafi verið birt honum telur Vinnumálastofnun að hafna beri umsókn hans.

Með vísan til framangreindra sjónamiða sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að staðfesta beri ákvörðun stofnunarinnar.

IV.  Niðurstaða

Ágreiningur máls þessa lýtur að þeirri ákvörðun Vinnumálastofnunar að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda þar til hann hefur starfað að minnsta kosti tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði samkvæmt 60. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar og krefja kæranda um endurgreiðslu ofgreiddra atvinnuleysisbóta samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laganna.

Ákvæði 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, með síðari breytingum, hljóðar svo:

„Sá sem lætur vísvitandi hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða veitir vísvitandi rangar upplýsingar sem leiða til þess að hann telst ranglega tryggður að fullu eða að hluta samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði áður en hann sækir aftur um atvinnuleysisbætur. Hið sama gildir um þann sem starfar á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um að atvinnuleit sé hætt skv. 10. gr. eða um tilfallandi vinnu skv. 35. gr. a. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Af gögnum málsins verður ráðið að hin kærða ákvörðun sé byggð á 2. málsl. 60. gr. laganna. Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá 15. mars 2016 (E-2547/2015) var leyst úr ágreiningi sem varðaði ákvörðun Vinnumálastofnunar um beitingu viðurlaga samkvæmt 2. málsl. 60. gr. laganna. Í dóminum var fjallað ítarlega um túlkun framangreinds ákvæðis. Í niðurstöðunni segir meðal annars svo:

„Samkvæmt framangreindu verður fallist á þá efnislegu niðurstöðu umboðsmanns Alþingis, í fyrrgreindu áliti hans, að miða verði við að í verknaðarlýsingu 2. málsliðar 60. gr. laga nr. 54/2006 felist krafa um atvinnuleitandi hafi ætlað að afla sér atvinnuleysisbóta með sviksamlegum hætti. Af hálfu stefndu er því ómótmælt að mál stefnanda hafi ekki verið rannsakað sérstaklega með hliðsjón af huglægri afstöðu hans, enda byggir málatilbúnaður þeirra á því að slík afstaða hafi ekki haft þýðingu um meðferð og niðurstöðu stjórnsýslumálsins. Að virtri framagreindri niðurstöðu um skýringu 2. málsliðar 60. gr. laga nr. 54/2006 liggur þannig fyrir að verulegir annmarkar voru á málsmeðferð stefnda Vinnumálastofnunar og úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga svo og rökstuðningi ákvarðana. Er jafnframt ljóst að umræddir annmarkar voru til þess fallnir að hafa áhrif á niðurstöðu málsins. Verður því að fallist á kröfu stefnanda um að umræddar stjórnvaldsákvarðanir stefndu Vinnumálastofnunar og úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga um sviptingu bótaréttar stefnanda verði felldar úr gildi.“ 

Samkvæmt framangreindu er það skilyrði fyrir beitingu viðurlaga á grundvelli 2. málsl. 60. gr. að atvinnuleitandi hafi aflað sér atvinnuleysisbóta með sviksamlegum hætti. Úrskurðarnefnd velferðarmála telur að af gögnum málsins verði ráðið að Vinnumálastofnun hafi beitt kæranda viðurlögum á grundvelli framangreinds ákvæðis þar sem hann hafi starfað á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann hafi fengið greiddar atvinnuleysisbætur án þess að hafa tilkynnt stofnuninni um vinnuna. Því virðist huglæg afstaða kæranda ekki hafa verið könnuð áður en ákvörðun um beitingu viðurlaga var tekin. Með hliðsjón af framangreindu er það mat úrskurðarnefndar velferðarmála að málið hafi ekki verið nægjanlega upplýst áður en Vinnumálastofnun tók hina kærðu ákvörðun, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Því verður ekki hjá því komist að fella hina kærðu ákvörðun úr gildi og vísa málinu til baka til mats á því hvort kærandi hafi aflað sér atvinnuleysisbóta með sviksamlegum hætti.

Með vísan til þess sem hér hefur verið rakið er ákvörðun Vinnumálastofnunar um beitingu viðurlaga og innheimtu ofgreiddra bóta felld úr gildi og málinu vísað aftur til stofnunarinnar til nýrrar meðferðar.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 18. nóvember 2016, í máli A, um að staðfesta fyrri ákvörðun um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda þar til hann hefur starfað í að minnsta kosti tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði og innheimtu ofgreiddra atvinnuleysisbóta samtals að fjárhæð 57.923 kr. að meðtöldu 15% álagi, er felld úr gildi. Málinu er vísað aftur til stofnunarinnar til nýrrar meðferðar.


F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta