Hoppa yfir valmynd
27. febrúar 2020 Utanríkisráðuneytið

Börn og kennarar létust í árásum á skóla og leikskóla í Idlib

Ung stúlka með barn á flótta ásamt fjölskyldu þeirra í Idlib í upphafi mánaðar. Erfiðar veðuraðstæður gera ástandið í norðvesturhlutanum illt verra.© UNICEF/Akach - mynd

Að minnsta kosti níu börn og þrír kennarar létu lífið í árásum á tíu skóla og leikskóla í Idlib í Sýrlandi í gær. Ted Chaiban, yfirmaður UNICEF í Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku, fordæmir árásirnar og segir fólk orðlaust yfir ofbeldinu. „Enn eina ferðina erum við slegin yfir þessu miskunnarlausa ofbeldi sem gengur hér yfir og varð til þess að níu börn og þrír kennarar létu lífið í árásunum í gær,“ segir Chaiban í yfirlýsingu.

Að minnsta kosti fjórir þessarar skóla nutu stuðnings samstarfsaðila UNICEF. Samkvæmt upplýsingum á vef UNICEF særðust hátt í 40 konur og börn í þessum árásunum.

„Rúmlega hálf milljón barna í norðvesturhluta Sýrlands hefur neyðst til að flýja heimili sín síðan 1. desember síðastliðinn. Tugþúsundir barna og fjölskyldur þeirra búa nú í tjöldum og undir berum himni nú þegar vetrartíð með snjó og slæmu veðri er gengið í garð. Átökin í norðurhéruðum hafa versnað undanfarið, en líkt og greint var frá á dögunum er staðfest að 77 börn hafi látið lífið eða særst í átökum í norðvesturhluta Sýrlands það sem af er árinu. Og eru þá þau börn sem létust og særðust núna undanskilin,“ segir í frétt UNICEF.

„Við fordæmum harkalega morð og limlestingar á börnum. Skólar og aðrar menntastofnanir njóta friðhelgi og eiga að vera öruggir staðir fyrir börn. Árásir á þær er gríðarlega alvarlegt brot á réttindum barna. Stríðandi fylkingum í Sýrlandi ber að vernda börn og ber að láta af árásum á stofnanir og mikilvæga innviði,“ segir Chaiban að lokum.

UNICEF minnir á áframhaldandi neyðarsöfnun fyrir börn í Sýrlandi.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

16. Friður og réttlæti
4. Menntun fyrir öll

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta