Hoppa yfir valmynd
2. maí 2024 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr.75/2024-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 75/2024

Fimmtudaginn 2. maí 2024

A

gegn

Reykjavíkurborg

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 12. febrúar 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Reykjavíkurborgar, dags. 7. febrúar 2024, um að synja umsóknum hennar um fjárhagsaðstoð.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með umsóknum, dags. 28. desember 2023 og 9. janúar 2024, sótti kærandi um fjárhagsaðstoð til framfærslu í formi láns fyrir annars vegar tímabilið 1. desember 2023 til 31. desember 2023 og hins vegar tímabilið 1. janúar 2024 til 31. janúar 2024. Umsóknum kæranda var synjað og staðfesti áfrýjunarnefnd velferðarráðs þá niðurstöðu með ákvörðun, dags. 7. febrúar 2024. Kærandi óskaði eftir rökstuðningi fyrir þeirri ákvörðun og var hann veittur með bréfi Reykjavíkurborgar, dags. 22. febrúar 2024.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 12. febrúar 2024. Með bréfi, dags. 13. mars 2024, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Reykjavíkurborgar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Reykjavíkurborgar barst 11. apríl 2024 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 15. apríl 2024. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar velferðarmála vísar kærandi til þess að það sem sé talið laun í janúar sé orlof sem fyrrum vinnuveitandi hafi gert upp við hana. Kærandi hefði átt að fá það í maí 2024. Því sé ekki um laun að ræða.

III.  Sjónarmið Reykjavíkurborgar

Í greinargerð Reykjavíkurborgar kemur fram að kærandi í máli þessu sé X ára gömul kona sem búi í félagslegu leiguhúsnæði. Hún eigi eitt barn sem dvelji hjá föður kæranda en hjá henni um helgar og í fríum. Kærandi hafi átt við vímuefnavanda að stríða en hafi verið edrú síðastliðin fimm ár. Eftir að kærandi hafi orðið edrú hafi hún lokið starfsendurhæfingu og farið að vinna á íbúðakjarna fyrir fötluð börn hjá Reykjavíkurborg, auk þess sem hún hafi byrjað í sjúkraliðanámi. Í ágúst 2023 hafi kærandi lent í skotárás þegar hún hafi verið stödd erlendis og eitt skotanna hafi hæft í fingur annarrar handar. Frá framangreindum atburði hafi kærandi verið óvinnufær en áverki á fingri hennar sé þess eðlis að hún hafi ekki getað sinnt vinnu. Þá glími hún einnig við verki og andlega vanlíðan eftir atburðinn. Fyrirhugað sé að fjarlægja fingur kæranda með skurðaðgerð. Þá hafi kærandi verið útsett fyrir svartmyglu í íbúð sem hún hafi leigt hjá Félagsbústöðum á tímabilinu september 2020 til maí 2022 og hafi átt við heilsubrest að stríða síðan þá. Sökum heilsubrests vegna svartmyglu sem og vanlíðan eftir skotárás sem hún hafi orðið fyrir í ágúst 2023 hafi kærandi hætt í sjúkraliðanámi sem hún hafi lagt stund á. Þá hafi Reykjavíkurborg gert starfslokasamning við kæranda þar sem hún hafi verið óvinnufær. Kærandi hafi sótt um örorkulífeyri hjá Tryggingastofnun ríkisins. Á meðan umsókn hennar hafi verið í vinnslu hjá Tryggingastofnun ríkisins hafi kærandi sótt um lán til framfærslu hjá Reykjavíkurborg fyrir tímabilið 1. desember 2023 til 31. janúar 2024. Kærandi hafi að sögn ekki verið nægilega vel upplýst um eðli starfslokasamningsins en hann hafi meðal annars falið í sér að uppsafnað orlof sem hún hafi átt inni yrði greitt út í formi launa þann 1. desember 2023 og 1. janúar 2024. Þá hafi hún einnig fengið greiðslu úr sjúkrasjóði stéttarfélags síns. Framangreind ráðstöfun hafi að sögn kæranda komið henni í þá stöðu að hún eigi lítinn rétt á styrkjum sem hún sækist eftir þar sem hún flokkist of tekjuhá. Þá segi kærandi að þær tekjur sem hún hafi fengið greiddar þann 1. desember 2023 og 1. janúar 2024 hafi farið í að greiða skuldir og föst útgjöld. Þá skuldi kærandi einn mánuð í leigu frá því um haustið 2023 sem hún hafi ekki náð að greiða sökum þess að hún hafi verið tekjulaus í febrúar 2024.

Þann 28. desember 2023 hafi kærandi sótt um fjárhagsaðstoð til framfærslu í formi láns fyrir tímabilið 1. desember 2023 til 31. desember 2023. Þann 9. janúar 2024 hafi kærandi sótt um fjárhagsaðstoð til framfærslu í formi láns fyrir tímabilið 1. janúar 2024 til 31. janúar 2024. Með bréfum, dags. 2. febrúar 2024, hafi umsókn kæranda verið synjað á grundvelli 12. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg fyrir framangreind tímabil. Kærandi hafi skotið framangreindum synjunum til áfrýjunarnefndar velferðarráðs sem hafi tekið málið fyrir á fundi sínum þann 7. febrúar 2024 og afgreitt það með eftirfarandi bókun:

Þann 20. júní 2023 hafi kærandi sótt um fjárhagsaðstoð til framfærslu fyrir tímabilið 1. júní 2023 til 30. júní 2023 sem hafi verið synjað 17. júlí 2023. Þann 3. júlí 2023 hafi kærandi sótt um fjárhagsaðstoð til framfærslu fyrir tímabilið 1. júlí 2023 til 31. júlí 2023 sem hafi verið synjað þann 16. ágúst 2023. Þann 23. ágúst 2023 hafi kærandi sótt um fjárhagsaðstoð til framfærslu fyrir tímabilið 1. ágúst 2023 til 31. ágúst 2023 sem hafi verið synjað þann 25. ágúst 2023. Kærandi hafi skotið framangreindri synjun til áfrýjunarnefndar velferðarráðs sem hafi tekið málið fyrir á fundi sínum þann 4. október 2023 og afgreitt það með eftirfarandi bókun:

„Áfrýjunarnefnd velferðarráðs staðfesti synjun starfsmanna á miðstöð Reykjavíkurborgar um undanþágu frá tekjum, vegna umsóknar um fjárhagsaðstoð til framfærslu í formi láns fyrir tímabilið 1. desember 2023 til 31. janúar 2024 skv. 12. gr. reglna Reykjavíkurborgar um fjárhagsaðstoð.“

Núgildandi reglur um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg með áorðnum breytingum hafi tekið gildi þann 1. apríl 2021 og verið samþykktar á fundi velferðarráðs Reykjavíkurborgar þann 24. febrúar 2021 og á fundi borgarráðs þann 4. mars 2021. Umræddar reglur séu settar á grundvelli 21. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga. Litið sé svo á að fjárhagsaðstoð til framfærslu frá sveitarfélagi sé neyðaraðstoð sem ekki beri að veita nema engar aðrar bjargir séu fyrir hendi. Í 1. gr. reglnanna komi fram að skylt sé að veita fjárhagsaðstoð til framfærslu einstaklinga og fjölskyldna sem ekki geti séð sér og sínum farborða án aðstoðar, sbr. IV. og VI. kafla laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga, með síðari breytingum, sbr. og III. kafla reglnanna. Um fjárhagsaðstoð til framfærslu frá Reykjavíkurborg gildi sú meginregla að umsækjandi fái einungis greidda fjárhagsaðstoð til framfærslu ef hann geti ekki framfleytt sér. Umrædd meginregla eigi sér stoð í 2. gr. reglna um fjárhagsaðstoð, sbr. 19. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga sem kveði meðal annars á um skyldu hvers og eins að framfæra sjálfan sig, maka sinn og börn yngri en 18 ára.

Í III. kafla reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg sé að finna ákvæði sem lúti að rétti til fjárhagsaðstoðar. Við mat á því hvort umsækjandi geti átt rétt til fjárhagsaðstoðar samkvæmt reglunum skuli meðal annars horft til 12. gr. reglnanna sem kveði á um það hvernig skuli litið til tekna og eigna umsækjanda. Í 2. mgr. 12. gr. reglna um fjárhagsaðstoð í Reykjavík segi:

„Allar tekjur einstaklingsins/maka, í þeim mánuði sem sótt er um og mánuðinn á undan, aðrar en greiðslur vegna barna og húsnæðis-/vaxtabætur og/eða sérstakur húsnæðisstuðningur, koma til frádráttar við ákvörðun um upphæð fjárhagsaðstoðar.

Mæðra- og feðralaun reiknast umsækjanda til tekna. Eigi umsækjandi rétt á atvinnuleysisbótum, skal reikna atvinnuleysisbætur honum til tekna. Hið sama á við ef umsækjandi á rétt á greiðslum frá öðrum aðilum.“

Samkvæmt upplýsingum úr staðgreiðsluskrá hafi kærandi fengið annars vegar tekjur að upphæð 908.053 kr. þann 1. desember 2023 (vegna nóvembermánaðar). Framangreindar tekjur skiptist í 481.657 kr. frá Styrktar- og sjúkrasjóði Sameykis og 426.396 kr. frá vinnuveitanda (Reykjavíkurborg). Hins vegar hafi kærandi fengið tekjur að upphæð 870.913 kr. þann 1. janúar 2024 (vegna desembermánaðar). Framangreindar tekjur skiptist í 292.434 kr. frá Styrktar- og sjúkrasjóði Sameykis og 578.479 kr. frá vinnuveitanda (Reykjavíkurborg). Samtals séu þetta því greiðslur að upphæð 1.778.966 kr. Upphæð fjárhagsaðstoðar til framfærslu til einstaklings, 18 ára eða eldri, sem reki eigið heimili geti numið allt að 239.895 kr. á mánuði, sbr. 1. mgr. 10. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg. Það sé því ljóst að þær greiðslur sem kærandi hafi fengið greiddar annars vegar 1. desember 2023 og hins vegar 1. janúar 2024 séu hærri en fjárhagsaðstoð til framfærslu frá Reykjavíkurborg.

Með hliðsjón af öllu framansögðu hafi áfrýjunarnefnd velferðarráðs talið rétt að tekjur kæranda, í þeim mánuði sem sótt hafi verið um og mánuðinum á undan, komi til frádráttar við ákvörðun um upphæð fjárhagsaðstoðar til framfærslu. Þar af leiðandi hafi umsóknum kæranda um fjárhagsaðstoð til framfærslu fyrir tímabilið 1. desember 2023 til 31. janúar 2024 verið synjað á grundvelli 2. mgr. 12. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborgar. Með vísan til framangreinds hafi áfrýjunarnefnd velferðarráðs því staðfest synjun starfsmanna miðstöðvar á fjárhagsaðstoð til framfærslu í formi láns fyrir áðurnefnt tímabil.

Með vísan til alls framangreinds verði að telja að ákvörðun áfrýjunarnefndar velferðarráðs Reykjavíkurborgar hafi hvorki brotið gegn fyrrgreindum reglum um fjárhagsaðstoð, sbr. 21. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga, né öðrum ákvæðum laga nr. 40/1991.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Reykjavíkurborgar um að synja umsóknum kæranda um fjárhagsaðstoð í formi láns fyrir tímabilið 1. desember 2023 til 31. janúar 2024.

Markmið félagsþjónustu á vegum sveitarfélaga er að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi og stuðla að velferð íbúa á grundvelli samhjálpar, sbr. 1. mgr. 1. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga. Samkvæmt 2. mgr. 1. gr. laganna skal þess gætt við framkvæmd félagsþjónustunnar að hvetja einstaklinginn til ábyrgðar á sjálfum sér og öðrum, virða sjálfsákvörðunarrétt hans og styrkja hann til sjálfshjálpar. Um leið skulu við framkvæmd félagsþjónustunnar sköpuð skilyrði til að einstaklingurinn geti tekið virkan þátt í samfélaginu á eigin forsendum. Félagsleg þjónusta skuli í heild sinni miða að valdeflingu og miðast við einstaklingsbundnar þarfir og aðstæður. Með félagsþjónustu er átt við þjónustu, aðstoð og ráðgjöf, meðal annars í tengslum við fjárhagsaðstoð, sbr. 1. mgr. 2. gr.

Í 1. mgr. 12. gr. laganna kemur fram að sveitarfélag skuli sjá um að veita íbúum þjónustu og aðstoð samkvæmt lögunum og jafnframt tryggja að þeir geti séð fyrir sér og sínum. Sveitarfélög skuli tryggja að stuðningur við íbúa sem hafi barn á framfæri sé í samræmi við það sem sé barninu fyrir bestu. Þá segir í 2. mgr. 12. gr. að aðstoð og þjónusta skuli jöfnum höndum vera til þess fallin að bæta úr vanda og koma í veg fyrir að einstaklingar og fjölskyldur komist í þá aðstöðu að geta ekki ráðið fram úr málum sínum sjálf. Í athugasemdum með ákvæði 12. gr. í frumvarpi til laga nr. 40/1991 kemur fram að skyldur sveitarfélaga miðist annars vegar við að veita þjónustu og aðstoð samkvæmt lögunum og hins vegar að tryggja að íbúar geti séð fyrir sér og fjölskyldum sínum.

Í VI. kafla laga nr. 40/1991 er kveðið á um fjárhagsaðstoð en í 19. gr. laganna kemur fram sú grundvallarregla að hverjum manni sé skylt að framfæra sjálfan sig, maka sinn og börn yngri en 18 ára. Samkvæmt 21. gr. laganna skal sveitarstjórn setja reglur um framkvæmd fjárhagsaðstoðar að fengnum tillögum félagsmálanefndar er metur þörf og ákveður fjárhagsaðstoð til einstaklinga í samræmi við reglur sveitarstjórnar, sbr. 2. mgr. sömu greinar. Lög nr. 40/1991 veita þannig sveitarfélögum ákveðið svigrúm til útfærslu á fjárhagsaðstoð til einstaklinga. Í samræmi við það og ákvæði stjórnarskrárinnar um sjálfstjórn sveitarfélaga er mat á þeirri útfærslu að meginstefnu til lagt í hendur hverrar sveitarstjórnar er þjónustuna veitir. Verður ekki við því mati hróflað af hálfu úrskurðarnefndar velferðarmála, svo fremi það byggi á lögmætum sjónarmiðum og sé í samræmi við lög að öðru leyti.

Í 1. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg er kveðið á um lagagrundvöll fjárhagsaðstoðar. Þar kemur fram í 1. mgr. að skylt sé að veita fjárhagsaðstoð til framfærslu einstaklinga og fjölskyldna sem ekki geta séð sér og sínum farborða án aðstoðar. Í 2. gr. reglnanna kemur einnig fram sama grundvallarregla og í 19. gr. laga nr. 40/1991 að hverjum manni sé skylt að framfæra sjálfan sig, maka sinn og börn yngri en 18 ára.

Samkvæmt 3. gr. framangreindra reglna skal við ákvörðun á fjárhagsaðstoð leggja til grundvallar grunnfjárþörf til framfærslu og frá henni dregnar heildartekjur. Grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar til einstaklings 18 ára og eldri sem rekur eigið heimili getur numið allt að 239.895 kr. á mánuði, sbr. 1. mgr. 10. gr. reglnanna. Með tekjum er átt við allar tekjur einstaklings/maka sem ekki eru sérstaklega til framfærslu barna, þ.e. atvinnutekjur, allar skattskyldar tekjur frá Tryggingastofnun ríkisins, greiðslur úr lífeyrissjóðum, atvinnuleysisbætur, leigutekjur o.fl., sbr. 1. mgr. 12. gr. reglnanna. Í 2. mgr. 12. gr. reglna segir svo:

„Allar tekjur einstaklingsins/maka, í þeim mánuði sem sótt er um og mánuðinn á undan, aðrar en greiðslur vegna barna og húsnæðis/vaxtabætur og/eða sérstakur húsnæðisstuðningur, koma til frádráttar við ákvörðun um upphæð fjárhagsaðstoðar. Mæðra- og feðralaun reiknast umsækjanda til tekna. Eigi umsækjandi rétt á atvinnuleysisbótum, skal reikna atvinnuleysisbætur honum til tekna. Hið sama á við ef umsækjandi á rétt á greiðslum frá öðrum aðilum.“

Samkvæmt 4. mgr. 12. gr. reglnanna skal miða við heildartekjur áður en tekjuskattur hefur verið dreginn frá. Reglur Reykjavíkurborgar um fjárhagsaðstoð ganga út frá því að allar tekjur, aðrar en greiðslur vegna barna og húsnæðis/vaxtabætur og/eða sérstakur húsnæðisstuðningur, sé eðlilegt að nota sér til framfærslu áður en fengin er fjárhagsaðstoð frá sveitarfélaginu. Fjárhagsaðstoðin er þannig neyðarúrræði fyrir þá sem hafa ekki aðgang að fjármunum sér til framfærslu.

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi með 908.053 kr. í tekjur í nóvembermánuði 2023, eða 481.657 kr. frá Styrktar- og sjúkrasjóði Sameykis og 426.396 kr. frá fyrrum vinnuveitanda sínum. Í desembermánuði 2023 var kærandi með 870.913 kr. í tekjur, eða 292.434 kr. frá Styrktar- og sjúkrasjóði Sameykis og 578.479 kr. frá fyrrum vinnuveitanda sínum. Ljóst er að þær tekjur eru hærri en framangreind grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar, sbr. 1. mgr. 10. gr. reglna Reykjavíkurborgar um fjárhagsaðstoð, engu skiptir að um sé að ræða áunnið orlof sem kærandi fékk greitt út á hinu umdeilda tímabili.

Með vísan til framangreinds er synjun Reykjavíkurborgar á umsóknum kæranda um fjárhagsaðstoð fyrir tímabilið 1. desember 2023 til 31. janúar 2024 staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Reykjavíkurborgar, dags. 7. febrúar 2024, um að synja umsóknum A, um fjárhagsaðstoð fyrir tímabilið 1. desember 2023 til 31. janúar 2024, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta