Loftferðasamningur við Egyptaland áritaður
Loftferðasamningur milli Íslands og Egyptalands var áritaður í Kaíró þann 18. júní. Er þetta fyrsti loftferðasamningurinn milli ríkjanna og hefur þegar tekið gildi til bráðabirgða fram að formlegri undirritun.
![Loftferðasamningur við Egyptaland undirritaður.](/media/innanrikisraduneyti-media/media/frettir/Loftferdasamn._vid_Egypta.jpg?proc=singleNewsItem)
Samninginn árituðu Helgi Ágústsson sendiherra og Nagy Saleh, vararáðuneytisstjóri flugmálaráðuneytis Egyptalands. Í samninganefnd Íslands um gerð loftferðasamningsins voru af hálfu Íslands auk Helga þau Ástríður Scheving Thorsteinsson, lögfræðingur í samgönguráðuneytinu, og Hrafn Þorgeirsson, framkvæmdastjóri framleiðslusviðs flugfélagsins Jetx/Primera.
Í samningnum felast grunn flugréttindi fyrir flugrekendur ríkjanna. Samningurinn tekur til áætlunarflugs milli ríkjanna án takmarkana á flutningsmagni, en með takmörkunum á tíðni fluga til tiltekinna áfangastaða í Egyptalandi en ótakmarkaða tíðni á vinsæla ferðamannastaði.
Samningurinn við Egyptaland styrkir möguleika íslenskra flugrekenda sem hafa sinnt og vilja sinna verkefnum í þessum heimshluta.