Styrkja samvinnu um endurnýjanlega orku og í sjávarútvegsmálum
Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, fundaði í dag með Davor Ivo Stier, utanríkisráðherra og varaforsætisráðherra Króatíu, sem staddur er hér á landi í tilefni þess að 25 ár eru liðin frá því að Ísland viðurkenndi sjálfstæði Króatíu fyrst ríkja.
Á fundinum ræddu ráðherrarnir stöðu mála í Evrópu, Brexit og samvinnu innan Atlantshafsbandalagsins. Þá ákváðu ráðherrarnir að styrkja tvíhliða samskipti ríkjanna, meðal annars á sviðum endurnýjanlegrar orku og í sjávarútvegsmálum.
„Þá var óhjákvæmilegt að ræða stuttlega um fótbolta og viðureignir Íslands og Króatíu á síðustu misserum. Þar höfum við harma að hefna en að öðru leyti eru samskipti ríkjanna einstaklega góð og við minnumst með stolti þegar Ísland gekk fram fyrir skjöldu og viðurkenndi sjálfstæði Króatíu fyrir rúmum 25 árum. Það reyndist mjög farsæl ákvörðun," segir Guðlaugur Þór.
Að loknum fundi ráðherrana sæmdi utanríkisráðherra Króatíu Jóni Baldvin Hannibalssyni, fyrrverandi utanríkisráðherra, orðu fyrir þátt sinn í viðurkenningu Íslands á sjálfstæði Króatíu.