Hoppa yfir valmynd
1. apríl 2019 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Barnahús opnar útibú á Norðurlandi

 Ráðherra við opnun Barnahúss á Akureyri í dag - mynd

Í tilefni af tuttugu ára afmæli Barnahúss í fyrra fékk Barnaverndarstofa gjöf frá félags- og barnamálaráðherra, dómsmálaráðherra og lögreglunni á Norðurlandi eystra svo hægt væri að koma á fót útibúi fyrir Barnahús á Norðurlandi. Frá þeim tíma hefur verið unnið hörðum höndum að því að undirbúa opnun þess. Var það gert með formlegum hætti á Akureyri í dag.

Ásmundur Einar Daðason, félags og barnamálaráðherra, minntist við það tilefni á að stutt sé síðan að ákvörðun var tekin um stofnun útibúsins: „Það er í raun merkilegt að ekki hafi tekið lengri tíma að koma því á fót. Það sýnir hvað hægt er að gera ef allir taka höndum saman.“

Barnahús hefur verið starfrækt í Reykjavík frá árinu 1998 með það að markmiði að hagsmunir barns séu tryggðir þegar upp kemur grunur um kynferðisbrot. Hugmyndin er að sérfræðingarnir komi til barnsins en ekki öfugt og er verið að taka þá hugmynd skrefinu lengra í útibúinu á Norðurlandi.

Útibú Barnahúss á Norðurlandi er hið fyrsta sinnar tegundar hér á landi en þar er aðstaða fyrir bæði dómstóla og barnaverndarnefndir til að kanna grun um ofbeldi gegn börnum. Í útibúinu verða tekin rannsóknarviðtöl við börn og boðið upp á áfallameðferð. Hingað til hafa þeir sem annast meðferð ferðast um landið en nú er komin aðstaða til að veita börnum á Norðurlandi hana á staðnum. Það býður upp á að hægt sé að hafa ýmsan æskilegan búnað við höndina, sem ekki er hægt þegar starfsfólk er á ferð og flugi, og ætti það að leiða til betri þjónustu. Vonir standa til að sambærileg útibú geti starfað í öllum landsfjórðungum.

Barnahús hefur fyrir löngu sannað gildi sitt og hefur samskonar starfsemi breiðst út um Evrópu en þar er nú að finna um sextíu barnahús að íslenskri fyrirmynd. Frásögn barns er oft eina sönnunargagnið í málum þar sem kynferðisbrot gegn barni er til rannsóknar. Sömuleiðis í málum sem varða líkamlegt ofbeldi. Þess vegna skiptir öllu máli að barn treysti sér til að segja frá því ofbeldi sem það hefur orðið fyrir og er sú vinna sem unnin er í Barnahúsi mikilvægur líður í því.

Ásmundur Einar sagði við opnunina í dag að um mikilvægan áfangasigur væri að ræða. „Börn eiga að hafa jafnan rétt á þjónustu óháð búsetu og er það ekki síst mikilvægt í jafn viðkvæmum málum og hér um ræðir. Jafn réttur allra barna til sömu þjónustu er ein helsta áskorunin sem við stöndum frammi fyrir við endurskoðun á félagslegri umgjörð og þjónustu við börn sem fer fram í félagsmálaráðuneytinu um þessar mundir. Opnun Barnahúss á Norðurlandi er sannarlega jákvætt skref í þá átt að bæta þjónustu við börn.“

 

  • Ásmundur Einar ásamt Heiðu Björgu Pálmadóttur, starfandi forstjóra Barnaverndarstofu og Halldóri Haukssyni, sviðsstjóra meðferðar- og fóstursviðs - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta