Hoppa yfir valmynd
24. apríl 2013 Forsætisráðuneytið

A-475//2013. Úrskurður frá 12. apríl 2013

ÚRSKURÐUR


Hinn 12. apríl 2013 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð í máli nr. A-475/2013.

Kæruefni

Með bréfi, dags. 3. ágúst 2012, kærði [A] hrl., f.h. [B], afgreiðslu Fjármálaeftirlitsins, dags. 6. júlí 2012, á beiðni hans, dags. 1. júní s.á., um aðgang að nánar tilteknum gögnum í 26 töluliðum.

Fyrir úrskurðarnefndinni gerir kærandi eftirfarandi kröfur: Aðallega að úrskurðarnefnd um upplýsingamál felli hina kærðu ákvörðun Fjármálaeftirlitsins úr gildi og heimili kæranda aðgang að gögnum í 26 töluliðum. Til vara að úrskurðarnefnd um upplýsingamál felli hina kærðu ákvörðun Fjármálaeftirlitsins úr gildi og heimili aðgang að svo stórum hluta þeirra gagna, sem krafist er aðgangs að í beiðni, dags. 1. júní 2012, og úrskurðarnefndin telji rétt á grundvelli upplýsingalaga nr. 50/1996.


Málsatvik

Kærandi sendi Fjármálaeftirlitinu (FME) beiðni um afhendingu gagna, dags. 1. júní 2012, en í kæru kemur fram að gagnaöflun kæranda tengist máli sem höfðað hafi verið á hendur kæranda fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur vegna stjórnendatryggingar sem í gildi hafi verið hjá félaginu frá 1. maí 2008 til 1. maí 2009.

Í beiðninni er óskað eftir gögnum í 26 töluliðum með eftirfarandi hætti […]:

Auk ofangreinds var sérstaklega óskað eftir eftirfarandi gögnum, sem og afritum af öllum gögnum, þ.m.t. öllum samskiptum milli FME og [C], s.s. bréfaskiptum, tölvupóstum o.s.frv., fundargerðum, minnisblöðum FME, ákvörðunum FME, athugasemdum FME, stjórnvaldssektum FME, kærum, sáttum o.fl., eftir því sem við ætti, sem lægju fyrir hjá FME og varða eftirfarandi: […]

Eins og fram hefur komið afgreiddi Fjármálaeftirlitið upplýsingabeiðni kæranda með bréfi, dags. 6. júlí 2012. Í bréfinu er fjallað um reglu 3. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996 um upplýsingarétt almennings og um þá reglu sem fram kemur í 1. mgr. 10. gr. laganna að þegar óskað er aðgangs að gögnum í fórum stjórnvalda þarf sá sem óskar aðgangs að tilgreina það mál eða gögn í því máli sem óskað er eftir. Ákvæðið komi í veg fyrir að unnt sé að óska aðgangs að gögnum í ótilteknum fjölda mála eða gögnum í ótilteknum málum af ákveðinni tegund eða frá ákveðnu tímabili. Þá vísar Fjármálaeftirlitið í bréfi sínu til 11. gr. laganna og vísar til þess að ákvæðið gefi það beinlínis til kynna að almennt eigi stjórnvaldi að vera mögulegt að afgreiða upplýsingabeiðni innan sjö daga frá móttöku hennar. Til þess að stjórnvaldi sé það mögulegt verði að gera ákveðnar kröfur um tilgreiningu máls eða ganga í upplýsingabeiðni. Var það afstaða Fjármálaeftirlitsins að upplýsingabeiðni kæranda varðaði ekki tiltekið mál í skilningi laganna heldur tiltekinn banka, [C] Fjármálaeftirlitið vísaði til þess að beiðnin væri of almenn til þess að hægt væri að taka hana til efnislegrar afgreiðslu án nánari afmörkunar. Með vísan til þessa vísaði Fjármálaeftirlitið upplýsingabeiðni kæranda frá.

Í kæru málsins segir að kærandi sé ósammála þeirri niðurstöðu sem Fjármálaeftirlitið komist að í bréfi sínu, dags. 6. júlí 2012. Kærandi hafni því að 11. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996 geti leitt til þess að stjórnvald veiti ekki aðgang að umbeðnum gögnum. Orðalag ákvæðisins sé skýrt um það að sé stjórnvaldi ekki mögulegt að afgreiða beiðni innan sjö daga skuli ekki hafna beiðni á þeim grundvelli heldur einungis skýra þeim aðila sem óskar aðgangs að gögnum ástæðum tafanna og hvenær ákvörðunar sé að vænta.

Kærandi hafi sent frá sér beiðni í 26 töluliðum þar sem nákvæmlega hafi verið tilgreind þau gögn og/eða upplýsingar sem hann hafi óskað aðgangs að, enda þótt að þeirri talningu hafi ekki verið ætlað að vera tæmandi. Kærandi vísar til þess að almennt hafi verið talið að túlka beri upplýsingalög með þeim hætti að stjórnvöld eigi almennt að leitast við að tryggja almenningi aðgang að gögnum. Niðurstaða Fjármálaeftirlitsins gangi þvert gegn tilgangi laganna. Þá hafi stofnunin ekki tekið afstöðu til þeirra ákvæða laga nr. 87/1998 um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi sem kærandi hafi vísað til í beiðni sinni, en samkvæmt 1. mgr. 9. gr. laga nr. 87/1998 sé eftirlitsskyldum aðilum skylt að veita Fjármálaeftirlitinu aðgang að öllu bókhaldi sínu, fundargerðum, skjölum og öðrum gögnum í vörslum þeirra er varði starfsemina sem Fjármálaeftirlitið telji nauðsynlegt.

Í kæru er ítrekað að [C] sé í slitameðferð, en ekki fyrirtæki í rekstri, og því hafi bankinn ekki hagsmuni af því að fyrri viðskipti fari leynt. Þá hafi rannsóknarnefnd Alþingis og fjölmiðlar fjallað um flest, ef ekki öll þau mál, sem óskað sé gagna og upplýsinga um í beiðni, dags. 1. júní 2012. Hafi yfirleitt ríkt þagnarskylda um einhver þessara atriða á einhverju tímamarki, þá gerir hún það ekki lengur af þessum sökum.

Vísað er til þess að lagaákvæði um þagnarskyldu takmarki ekki skyldu til þess að veita upplýsingar og aðgang að gögnum, sbr. 3. mgr. 9. gr. laga nr. 87/1998. Af 2. mgr. 13. gr. laganna megi ráða að upplýsingarnar skuli háðar sambærilegri þagnarskyldu þegar þær hafi verið afhentar Fjármálaeftirlitinu. Samkvæmt 4. mgr. 13. gr. laganna skuli hins vegar „heimilt við rekstur einkamála að upplýsa um atriði sem þagnarskylda gildir annars um skv. 1. mgr.“ þegar eftirlitsskyldur aðili er gjaldþrota eða þvinguð slit fara fram, svo sem við á í tilviki [C].
 
Þá er áréttað að kærandi hafi ríka ástæðu og lögvarða hagsmuni í skjóli þess dómsmáls sem getið sé í kæru og annarra sem nú hafi verið höfðuð á hendur honum til að kynna sér þau gögn og upplýsingar sem óskað sé aðgangs að.


Málsmeðferð

Kæran var send Fjármálaeftirlitinu til athugasemda með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 8. ágúst 2012, og barst svar við því 3. september s.á.

Í bréfi Fjármálaeftirlitsins segir að með ákvörðun stofnunarinnar hafi upplýsingabeiðni kæranda verið vísað frá þar sem ekki hafi verið unnt að taka hana til efnislegrar meðferðar þar sem hún hafi þótt of almenn. Í ljósi þessa geti stofnunin eðli málsins samkvæmt ekki orðið við ósk úrskurðarnefndarinnar um afhendingu þeirra. Með vísan til þess að Fjármálaeftirlitið hafi ekki tekið efnislega afstöðu til upplýsingabeiðninnar í formi synjunar sé það mat stofnunarinnar að úrskurðarnefndin geti ekki tekið málið til úrskurðar og að vísa beri því frá. Fallist nefndin ekki á frávísun málsins á framangreindum grundvelli sé það mat Fjármálaeftirlitsins að sá ágreiningur sem tekinn yrði til úrskurðar lúti einungis að því hvort frávísun stofnunarinnar hafi verið réttmæt.

Segir svo orðrétt: „Hin víðtæka upplýsingabeiðni kæranda sem deilt er um í máli þessu er í 26 liðum. Beiðnin lýtur að upplýsingum um málefni [C] frá stofnun bankans til október 2008 og rannsóknir Fjármálaeftirlitsins í kjölfar bankahrunsins á starfsemi bankans.“ Vísað er til 1. mgr. og 2. mgr. 3. gr., 1. mgr. 9. gr. og 1. mgr. 10. gr.  upplýsingalaga nr. 50/1996 sem og laga nr. 161/2000 um breytingu á upplýsingalögum.

Segir svo orðrétt: „Að framangreindu virtu leiðir að þegar óskað er aðgangs að tilteknum gögnum verður upplýsingabeiðnin að tengjast tilteknu máli. Í beiðninni verður að tilgreina gögn máls eða málið með það glöggum hætti að stjórnvöldum sé fært að hafa uppi á viðkomandi máli og gögnum þess. Ekki er unnt að biðja um aðgang að gögnum í ótilgreindum málum eða aðgang að öllum málum af ákveðinni tegund eða frá tilteknu tímabili. Almennt er heldur ekki nóg að biðja um aðgang að öllum gögnum sem tengd eru einum aðila. Þessi skilningur fær einnig stoð í úrskurði úrskurðarnefndarinnar í máli A-398/2011 sem hefur fordæmisgildi í máli þessu.

Fjármálaeftirlitið bendir á að meginreglan um tilgreiningu máls eða gagna endurspeglast einnig í 1. mgr. 11. gr. upplýsingalaga. Ákvæðið gefur það beinlínis til kynna að stjórnvald á að geta tekið afstöðu til upplýsingabeiðni inn sjö daga frá móttöku hennar. Til þess að stjórnvaldi sé það mögulegt verður að gera ákveðnar kröfur um tilgreiningu máls eða gagna í upplýsingabeiðni.

Upplýsingabeiðni kæranda í máli þessu er ekki einungis mjög víðfeðm heldur er þar farið fram á gögn af ýmsum tegundum í ótilteknum málum á löngu tímabili sem varða tiltekinn aðila, […]. Hún er því í engu samræmi við þær kröfur um afmörkun sem upplýsingalög gera til slíkrar beiðni og lýst er nánar hér að framan.

[...]

Fallist úrskurðarnefndin ekki á frávísun málsins mun ágreiningur sem tekinn yrði til úrskurðar hjá nefndinni einungis lúta að því hvort frávísun Fjármálaeftirlitsins hafi verið réttmæt. Ekki mun því koma til þess að úrskurðað verði hvort aðgangur að umbeðnum gögnum verði heimilaður eða synjun staðfest líkt og gert er ráð fyrir í upplýsingalögum. Jafnvel þótt svo hátti í máli þessu telur Fjármálaeftirlitið fullt tilefni til að koma að sjónarmiðum sínum er lúta að lagagrundvelli beiðni um upplýsingar sem liggja fyrir í málinu.

Í stjórnsýslukæru lögmanns kæranda er vísað til 4. mgr. 13. gr. laga nr. 87/1998 um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi. Því er haldið fram að ákvæðið eigi við um upplýsingar um málefni [C]. Ákvæðið er undantekning frá meginreglunni um hina sérstöku þagnarskyldu sem hvílir á starfsmönnum Fjármálaeftirlitsins samkvæmt 1. mgr. og ber því að skýra hana með þrengjandi hætti. Í ákvæðinu segir:

Þegar eftirlitsskyldur aðili er gjaldþrota eða þvinguð slit fara fram er heimilt við rekstur einkamála að upplýsa um atriði sem þagnarskylda gildir annars um skv. 1. mgr. Þagnarskyldan gildir þó um upplýsingar sem varða þriðja aðila sem á hlut að björgunaraðgerðum vegna eftirlitsskylds aðila.

Fjármálaeftirlitið bendir í þessu samhengi á að [C] er hvorki gjaldþrota né hefur félaginu verið slitið. [C] er í slitameðferð á grundvelli XII. kafla laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og undir eftirliti Fjármálaeftirlitsins [meðan] á henni stendur, sbr. 101. gr. a sömu laga og 2. mgr. 2. gr. laga nr. 87/1998. Þá er rétt að benda á að enda þótt fyrrnefnt ákvæði tæki til [C]. myndi slík niðurstaða ekki ná til upplýsinga sem háðar væru bankaleynd samkvæmt 58. gr. laga nr. 161/2002. Til hliðsjónar má benda á að gagnaöflun í einkamálum fyrir dómi fer samkvæmt ákvæðum laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála og getur aðili að slíku máli skorað á gagnaðila, í þessu tilviki [C], til að leggja fram gögn. Þá fylgja ákveðin réttaráhrif því verði hann ekki við slíkri áskorun, sbr. einnig til hliðsjónar dóm Hæstaréttar frá 27. janúar 2011 í máli nr. 699/2010.

Þá vísar lögmaður kæranda til þess að upplýsingar um málefni [C] hafi meðal annars verið afhentar rannsóknarnefnd Alþingis um aðdraganda og orsakir falls íslensku bankanna 2008 og hafi þar með trúnaði verið svipt af upplýsingunum og eigi því kærandi rétt til upplýsinganna. Í þessu samhengi þykir rétt að geta þess að fyrrnefnd rannsóknarnefnd var skipuð á grundvelli laga nr. 142/2008. Samkvæmt lögunum hafði nefndin mjög víðtækan rétt til upplýsinga frá einstaklingum, lögaðilum og stofnunum, þ. á m. Fjármálaeftirlitinu. Á nefndarmönnum og öðrum sem unnu að rannsókn fyrir nefndina hvíldi þagnarskylda um þær upplýsingar sem nefndinni bárust og leynt eiga að fara. Hlutverk nefndarinnar var ekki að afhenda eða svipta hulunni af einstökum upplýsingum eða gögnum sem henni voru afhentar við rannsókn sína heldur var henni ætlað að skrifa skýrslu þar sem niðurstöður rannsóknanna voru birtar á samandregnu formi. Með vísan til framangreinds og nýlegra úrskurða úrskurðarnefndarinnar í málum A-387/2011, A-398/2011 og A-419/2012 er ljóst að þær upplýsingar sem afhentar voru fyrrnefndri rannsóknarnefnd veita Fjármálaeftirlitinu ekki heimild til að láta þær af hendi til hvers sem þess óskar og víkja því ekki hinni sérstöku þagnarskyldu starfsmanna Fjármálaeftirlitsins, ákvæði um bankaleynd og takmörkunum sem upplýsingalög gera ráð fyrir úr vegi.“

Umsögn Fjármálaeftirlitsins var send kæranda til athugasemda með bréfi, dags. 4. september 2012. Með bréfi, dags. 21. september, bárust athugasemdir kæranda.

Í athugasemdum kæranda kemur fram að í svari Fjármálaeftirlitsins þann 6. júlí 2012 hafi falist efnisleg afstaða í formi synjunar, sem kæranleg sé til úrskurðarnefndar um upplýsingamál.

Kærandi hafnar því að upplýsingabeiðni hans hafi ekki verið í samræmi við þær kröfur um afmörkun sem upplýsingalög geri til beiðni um gögn, enda hafi verið um að ræða sundurliðaða beiðni í 26 afmörkuðum töluliðum, þar sem hver og einn töluliður beiðninnar hafi varðað tiltekin gögn og/eða upplýsingar í tilteknu máli. Það að öll gögnin varði [C] og nái yfir nokkurra ára tímabil breyti þó ekki því að beiðni kæranda varði sundurliðuð gögn og/eða upplýsingar í töluverðum fjölda mála og hafi verið afmörkuð með skýrum hætti.  Í raun hafi beiðnin falið í sér margar beiðnir sem hver og ein hafi lotið að tilteknu máli og/eða gagni.

Kærandi telji að Fjármálaeftirlitið geti ekki gert svo víðtækar kröfur til kæranda að hann tilgreini með nákvæmum hætti öll þau gögn sem óskað sé aðgangs að, enda sé þeim sem óskar aðgangs að gögnum í flestum tilfellum ómögulegt að hafa slíkar upplýsingar á takteinum fyrirfram, hafi þær ekki verið gerðar opinberar, nema með tilstuðlan viðkomandi stjórnvalds eða aðila máls. Í því sambandi er bent á heimild 1. mgr. 10. gr. laganna, um heimild til að fá að kynna sér öll gögn um tiltekið mál.

Þá segir í kæru að hafi Fjármálaeftirlitið talið einhvern hluta af upplýsingabeiðni kæranda óljósan, óskýran eða illa afmarkaðan hafi stofnuninni verið skylt að veita kæranda aðgang að þeim gögnum og/eða upplýsingum sem óskað hafi verið eftir í öðrum hlutum beiðninnar. Þá er því hafnað að í 1. mgr. 11. gr. endurspeglist regla um tilgreiningu máls eða gagna. Tafir á afgreiðslu geti aldrei verið grundvöllur frávísunar eða synjunar beiðni. Þá er vísað til tilgangs upplýsingalaga, sbr. almennar athugasemdir í frumvarpi til upplýsingalaga.

Vísað er til 3. mgr. 9. gr. og 13. gr. laga nr. 87/1998 um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi og XII. kafla laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, sbr. 6. tölul. 1. mgr. 9. gr. sömu laga. Byggt er á því að 4. mgr. 13. gr. laga nr. 87/1998 taki til kæranda. Þá er vísað til 58. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og dóms Hæstaréttar frá 20. janúar 2010 í málinu nr. 758/2009 ef af honum leiði að hin svokallaða bankaleynd gildi ekki um upplýsingar sem varði hagsmuni fjármálafyrirtækisins sjálfs, svo sem og [C]. Sökum þess að [C] sé í slitameðferð, en ekki fyrirtæki í rekstri, hafi bankinn ekki hagsmuni af því að fyrri viðskipti fari leynt.

Með vísan til 31. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 þykir ekki ástæða til þess að rekja frekar það sem kemur fram í gögnum málsins um málsatvik og ágreiningsefni aðila en gert hefur verið. Úrskurðarnefndin hefur haft hliðsjón af öllum gögnum málsins við úrlausn þess.


Niðurstaða

1.

Ný upplýsingalög nr. 140/2012 tóku gildi 28. desember 2012. Með þeim féllu úr gildi að stærstum hluta ákvæði eldri upplýsingalaga nr. 50/1996, sbr. 1. mgr. 35. gr. hinna nýju laga. Þegar Fjármálaeftirlitið tók hina kærðu ákvörðun voru enn í gildi eldri upplýsingalög nr. 50/1996. Var hún því byggð á efnisákvæðum þeirra laga.

Hlutverk úrskurðarnefndar um upplýsingamál er að úrskurða um ágreining sem til hennar er beint vegna synjunar stjórnvalda um aðgang að gögnum, sbr. áður 14. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996, sbr. nú 20. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Af þessu leiðir að endurskoðun úrskurðarnefndarinnar lýtur að því hvort hin kærða ákvörðun hafi verið rétt að teknu tilliti til þeirra efnisreglna um upplýsingarétt sem í gildi voru þegar hún var tekin. Meðferð úrskurðarnefndarinnar á kærumálinu lýtur hins vegar, frá og með gildistöku hinna nýju laga, þeim reglum um form og hlutverk úrskurðarnefndarinnar sem þar koma fram.

2.
Eins og fram hefur komið barst kæra þessa máls úrskurðarnefnd um upplýsingamál með bréfi, dags. 3. ágúst 2012, en kæran laut að afgreiðslu Fjármálaeftirlitsins á gagnabeiðni kæranda sem sett var fram í 26 töluliðum. Í skýringum Fjármálaeftirlitsins til úrskurðarnefndarinnar kemur fram að ekki hafi verið unnt að taka upplýsingabeiðni kæranda til efnislegrar meðferðar þar sem hún hafi þótt of almenn og var af þeim sökum heldur ekki unnt að verða við ósk úrskurðarnefndarinnar um afhendingu gagna.  

Í 1. mgr. 3. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996 er m.a. kveðið á um að stjórnvöldum sé skylt, sé þess óskað að veita almenningi aðgang að fyrirliggjandi gögnum „sem varða tiltekið mál“ með þeim takmörkunum sem greinir í 4.-6. gr.

Í 1. mgr. 10. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996, sbr. 2. gr. laga nr. 161/2006, segir: „Sá sem fer fram á aðgang að gögnum skal tilgreina þau gögn máls sem hann óskar að kynna sér. Þá getur hann óskað eftir að fá að kynna sér öll gögn um tiltekið mál án þess að tilgreina einstök gögn sem málið varða.“ Réttur til upplýsinga á grundvelli upplýsingalaga er samkvæmt framangreindu bundinn við gögn sem varða tiltekin mál sem eru eða hafa verið til meðferðar í stjórnsýslu ríkis eða sveitarfélaga, sbr. og 1. mgr. 1. gr. upplýsingalaga.

3.
Eins og fram hefur komið var beiðni kæranda um aðgang að gögnum sett fram í 26 töluliðum. Þegar beiðni er sett fram í mörgum liðum ber stjórnvaldi að afgreiða hvern lið fyrir sig og þá eftir atvikum vísa tilteknum liðum frá á þeim grundvelli að þeir séu of almennir til þess að unnt sé að afgreiða þá efnislega eða á grundvelli annarra frávísunarástæðna. Í afgreiðslu Fjármálaeftirlitsins er hver töluliður ekki skoðaður efnislega heldur beiðninni vísað frá í heild sinni.

Eins og áður segir getur almenningur óskað eftir því á grundvelli upplýsingalaga nr. 50/1996 að fá aðgang að öllum gögnum „er varða tiltekið mál“ með þeim takmörkunum sem rakin eru í lögunum. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur farið yfir beiðni kæranda og fær ekki séð að hún lúti að öllu leyti að tilteknu máli eða málum í skilningi upplýsingalaga, heldur að  samskiptum tiltekins banka og Fjármálaeftirlitsins.

Í ljósi framangreinds fellst úrskurðarnefnd um upplýsingamál á það með Fjármálaeftirlitinu að að hluti af þeim 26 töluliðum sem tilgreindir eru í beiðni kæranda hafi verið of almennur til þess að hægt hafi verið að taka hann til efnislegrar afgreiðslu án nánari afmörkunar.

Þegar svo háttar til að stjórnvöldum berst beiðni um aðgang að gögnum sem er svo almenn að ekki er hægt að ætlast til þess að stjórnvald geti haft uppi á gögnunum er stjórnvöldum rétt að vísa beiðninni frá í stað þess að taka efnislega afstöðu til hennar í formi synjunar.

Með vísan til framangreinds er það niðurstaða úrskurðarnefndar um upplýsingamál að  hluti af beiðni kæranda frá 1. júní 2012 hafi verið of almennur. Úrskurðarnefndin fellst á það með Fjármálaeftirlitinu að rétt hafi verið að vísa frá eftirfarandi töluliðum í beiðni kæranda um aðgang að gögnum; númer 1-12, 18, 24 og 26 eins og þeim er lýst í málsatvikalýsingu að framan.

Með vísan til framangreinds verður ekki séð að Fjármálaeftirlitið hafi með ákvörðun sinni 6. júlí 2012, afgreitt beiðni kæranda að öðru leyti með fullnægjandi hætti á grundvelli þágildandi upplýsingalaga. Telur úrskurðarnefnd um upplýsingamál óhjákvæmilegt annað en að vísa þeim hluta málsins heim til nýrrar og lögmætrar efnislegrar afgreiðslu Fjármálaeftirlitsins.
Að fenginni ofangreindri niðurstöðu þykir ekki ástæða til að fjalla um aðrar málsástæður sem hafðar hafa verið uppi vegna málsins.


Úrskurðarorð

Beiðni [A] hrl., f.h. [B], dags. 1. júní 2012, um aðgang að afriti af öllum skriflegum samskiptum FME og [C] á árunum 2007-2008, svo sem bréfaskiptum, tölvupóstsamskiptum o.fl., auk fylgiskjala og fylgigagna með öllum slíkum samskiptum, afriti af öllum fundargerðum funda FME (hvort sem er innanhúss eða fundum FME og [C] og/eða þriðju aðila) sem varða [C], rekstur [C] eða málefni hans að öðru leyti, og haldnir voru á árunum 2007-2008, afriti af öllum skjölum og gögnum FME sem varða [C], hvort sem þau eru vistuð á rafrænu formi eða ekki, þessi liður tekur meðal annars til allra minnisblaða og innanhússsamskipta FME varðandi [C], rekstur [C] eða málefni hans að öðru leyti, afriti af öllum dagbókarfærslum FME sem varða [C] á tímabilinu 2007-2008, afriti af öllum listum FME yfir málsgögn sem varða [C], afriti af öllum ákvörðunum FME varðandi [C], afriti af öllum kærum, stjórnvaldssektum, ákvörðunum FME og sáttum sem varða [C], afriti af öllum athugasemdum og afskiptum FME af starfsemi [C]  þ.m.t., en ekki takmarkað við, áminningum og viðvörunum er varða [C] og svör bankans við þeim, eftir því sem við á, afriti af öllum gögnum varðandi rannsóknir FME á [C], þar með talið vinnuskjölum, minnisblöðum og niðurstöðum FME, afriti af öllum ábendingum og athugasemdum sem FME sendi til rannsóknarnefndar Alþingis varðandi [C], afriti af öllum tilkynningum og kærum sem FME hefur sent til embættis sérstaks saksóknara varðandi [C], afriti af öllum öðrum upplýsingum og gögnum sem FME hefur undir höndum varðandi [C] og orðið hafa til á tímabilinu 2007 til dagsins í dag, afriti af öllum gögnum í tengslum við ágreining [C] við FME um flokkun áhættuskuldbindinga [C] vegna tiltekinna félaga, afriti af skriflegum samskipti FME og [C]  þann 5. júní 2007, 16. ágúst 2007, 15. nóvember 2007, 16. janúar 2008, 22. janúar 2008 og 27. janúar 2008, afriti af fyrirspurnum FME til [C] varðandi afskriftir lána [C] er vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.

Beiðni [A] hrl., f.h. [B], dags. 1. júní 2012, er að öðru leyti, þ.e. liðum 13-17, 19-23 og lið 25 vísað til Fjármálaeftirlitsins til nýrrar meðferðar og afgreiðslu.




Hafsteinn Þór Hauksson
formaður





                                                 Sigurveig Jónsdóttir                                        Friðgeir Björnsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta