Þriðja allsherjarúttekt á stöðu mannréttindamála á Íslandi
Þriðja allsherjarúttekt á stöðu mannréttindamála (e; Universal Periodic Review eða UPR) á Íslandi fór fram á vettvangi mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna í Genf í Sviss í dag. Fyrsta úttektin á stöðu mála á Íslandi var 2011 og sú næsta 2016.
Úttektin byggir á jafningjarýni ríkja sem felst í því að aðildarríki Sameinuðu þjóðanna fara yfir stöðu mannréttindamála hvers aðildarríkis og koma með ábendingar um það sem betur mætti fara. Markmiðið er meðal annars að bæta stöðu mannréttindamála í heiminum og að hvetja ríki til þess að uppfylla alþjóðlegar skuldbindingar sínar á sviði mannréttinda.
Fyrirtakan byggir á skýrslu þar sem er farið yfir hvernig íslensk stjórnvöld hafa fylgt eftir þeim tilmælum sem þau fengu í síðustu allsherjarúttekt ásamt yfirliti yfir tilmælin og stöðu innleiðingar þeirra.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra leiðir íslensku sendinefndina, sem tekur þátt í fundinum í gegnum fjarfundabúnað. Sendinefndin er einnig skipuð Bryndísi Hlöðversdóttur, ráðuneytisstjóra forsætisráðuneytisins, ásamt fulltrúum stýrihóps Stjórnarráðsins um mannréttindi sem er formlegur samráðsvettvangur allra ráðuneyta um mannréttindamál.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sagðist í opununarávarpi sínu fagna því tækifæri sem allsherjarúttekt á vettvangi Sameinuðu þjóðanna gefur íslenskum stjórnvöldum til að meta stöðu mannréttinda hér á landi og fá ábendingar frá öðrum ríkjum um hvað betur megi fara: „Við tökum þeirri gagnrýni með opnum huga með það að leiðarljósi að bæta stöðu mannréttinda á Íslandi. Við teljum jafnframt gleðilegt að mörg jákvæð skref hafa verið stigin í átt að aukinni vernd mannréttinda á Íslandi frá síðustu úttekt á vettvangi mannréttindaráðsins,“ sagði forsætisráðherra.
Forsætisráðherra sagði jafnframt mörg mikilvæg mál hafi orðið að lögum frá síðustu úttekt, ný jafnréttislöggjöf, lög um kynrænt sjálfræði og lög um jafna meðferð á vinnumarkaði. Langtíma þjónustusamningar hafi verið undirritaðir við félagasamtök sem sinna mannréttindamálum auk þess sem ný framkvæmdaáætlun um jafnréttismál hafi verið samþykkt. Þá hafi Ísland fullgilt ýmsar alþjóðlegar skuldbindingar á sviði mannréttindamála og fjölmargar aðgerðir verið innleiddar til að vinna gegn kynbundnu og kynferðislegu ofbeldi í kjölfar fullgildingar Istanbúl-samningsins.
Lögfesting Samningsins um réttindi fatlaðs fólks er jafnframt í undirbúningi og ákveðið hefur verið að setja á fót nýja sjálfstæða innlenda Mannréttindastofnun, en Ísland hefur hlotið tilmæli þess efnis í síðustu úttektum.
Hildur Sunna Pálmadóttir, Bryndís Hlöðversdóttir, ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu, Elísabet Gísladóttir og Helen Inga S Von Ernst, fulltrúar í sendinefnd Íslands.