Hoppa yfir valmynd
2. desember 2021 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 458/2021 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 458/2021

Fimmtudaginn 2. desember 2021

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 2. september 2021, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 25. ágúst 2021, um að fella niður bótarétt hans í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 18. júní 2019 og var umsókn hans samþykkt 15. ágúst 2019. Þann 10. ágúst 2021 bárust Greiðslustofu Vinnumálastofnunar upplýsingar um að kærandi hefði hafnað starfi hjá B og þann 12. ágúst bárust upplýsingar um að ekki hefði náðst í kæranda vegna atvinnuviðtals hjá C. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 18. ágúst 2021, var óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda vegna höfnunar á atvinnutilboðum. Skýringar bárust frá kæranda samdægurs. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 25. ágúst 2021, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans yrði felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Frekari skýringar bárust frá kæranda þann 26. ágúst 2021 og óskað var eftir endurupptöku málsins. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 1. september 2021, var beiðni um endurupptöku málsins hafnað.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 2. september 2021. Með bréfi, dags. 6. september 2021, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 22. september 2021 og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 24. september 2021. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hann hafi verið sviptur bótarétti í tvo mánuði þann 24. ágúst. Hann hafi ekki hafnað neinu atvinnutilboði heldur hafi hann á þessum tíma haft tækifæri á flóttamannakennslu hjá Vinnumálastofnun. Þegar hann hafi fengið þessi tvö atvinnutækifæri hafi hann ákveðið að vinna að því sem honum þyki betra. Hann telji að það sé betra fyrir sig að vinna við flóttamannakennslu með Vinnumálastofnun, enda hafi hann unnið með flóttamönnum í meira en tvö ár hjá íslenska Rauða krossinum. Hann hafi sett eldhúsvinnuna á bið þar sem hann hafi ekki viljað missa tækifærið til að hefja störf með Vinnumálastofnun.

Kærandi óski eftir því að honum sé gefið tækifæri til að vera betri útgáfa af sjálfum sér og að niðurfelling á bótarétti hans verði aflétt sem fyrst. Hann hafi treyst á þessar tekjur og þurfi að borga fyrir margt. Kærandi lofi að hann muni reyna að finna vinnu þar sem honum finnist hann vera öruggur og stöðugur í starfi. Hann hafi slæma reynslu af sumum fyrirtækjum í matvælaiðnaði þar sem þau hafi orðið gjaldþrota og hann hafi fengið greitt eftir sex mánuði.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að þann 10. og 12. ágúst hafi Greiðslustofu Vinnumálastofnunar borist þær upplýsingar að kærandi hefði hafnað fullu starfi hjá B og C. Í skýringum atvinnurekanda hafi komið fram að ekki hefði náðst í atvinnuleitanda. Með erindi, dags. 18. ágúst 2021, hafi verið óskað eftir afstöðu kæranda til höfnunar á umræddum störfum. Skýringar hafi borist frá kæranda samdægurs. Þar hafi kærandi greint frá því að hann hefði verið skráður á námskeið fyrir væntanlega leiðbeinendur/kennara í samfélagsfræðslu á vegum Vinnumálastofnunar. Vert sé að taka fram að um hafi verið að ræða þriggja daga námskeið. Þann 25. ágúst 2021 hafi kæranda verið tilkynnt að bótaréttur hans hefði verið felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Fyrir liggi að kærandi hafi hafnað atvinnutilboðum hjá B. og C. Ágreiningur í máli þessu snúi að því hvort ástæður kæranda vegna höfnunar á umræddum atvinnutilboðum séu gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.

Markmið laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt, tímabundna fjárhagsaðstoð á meðan þeir séu að leita sér að nýju starfi. Með þessu sé verið að tryggja stöðu og öryggi fólks í tímabundnu atvinnuleysi. Því sé gert ráð fyrir að þeir sem teljist tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins séu í virkri atvinnuleit þann tíma og séu jafnframt reiðubúnir að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem þeim standi til boða. Atvinnuleysistryggingar veiti þannig þeim sem tryggðir séu fjárhagslegt úrræði í tímabundnu atvinnuleysi sínu. Ríkar kröfur beri að gera til þeirra sem hafni starfi á innlendum vinnumarkaði að þeir hafi til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi.

Eitt af skilyrðum þess að umsækjandi um atvinnuleysisbætur eigi rétt til greiðslu atvinnuleysistrygginga sé að vera í virki atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í 14. gr. laganna sé nánar kveðið á um hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Þar sé útlistað að umsækjandi þurfi meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, vera reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi án sérstaks fyrirvara og hafa til þess vilja og getu. Að öðrum kosti verði ekki litið á hlutaðeigandi í virkri atvinnuleit. 

Í 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um viðurlög vegna höfnunar á starfi eða atvinnuviðtali. Ákvæðið sé svohljóðandi: 

,,Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Þá segi orðrétt í 4. mgr. sömu greinar:

,,Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Vinnumálastofnun sé gert að meta skýringar atvinnuleitenda vegna höfnunar á atvinnutilboði með hliðsjón af þeirri ríku skyldu sem hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til að vera reiðubúnir að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, án sérstaks fyrirvara, og hafa til þess vilja og getu.

Vinnumálastofnun sé heimilt að líta til aldurs hins tryggða, félagslegra aðstæðna tengdum skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima við ákvörðun um hvort hinn tryggði skuli sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 57. gr. laganna. Enn fremur sé Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar í boði sé starf fjarri heimili hans sem geri kröfu um að hlutaðeigandi flytji búferlum.

Þær skýringar sem kærandi hafi veitt Vinnumálastofnun vegna höfnunar á umræddum atvinnutilboðum og þær skýringar sem hann hafi borið fyrir sig í kæru til nefndarinnar snúi meðal annars að því að kærandi hafi verið skráður á námskeið fyrir væntanlega leiðbeinendur/kennara í samfélagsfræðslu á vegum Vinnumálastofnunar á svipuðum tíma og atvinnuviðtal hafi farið fram. Vert sé að taka fram að um sé að ræða þriggja daga námskeið sem kennt hafi verið 24. til 26. ágúst 2021. Kærandi hafi ekki verið skráður á umrætt námskeið.

Stofnunin telji að atvinnuleitandi geti ekki hafnað störfum á þeim forsendum að hann sé skráður á þriggja daga námskeið á vegum stofnunarinnar. Mikilvægt sé að atvinnuleitendur séu reiðubúnir til að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, séu reiðubúnir að taka starfi hvar sem er á Íslandi án sérstaks fyrirvara og hafi til þess vilja og getu, óháð því hvort um fullt starf eða hlutastarf sé að ræða eða vaktavinnu. Að öðrum kosti verði ekki litið á hlutaðeigandi í virkri atvinnuleit.

Líkt og áður hafi verið rakið hvíli rík skylda á atvinnuleitendum að taka því starfi sem þeim bjóðist, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi. Að mati Vinnumálastofnunar séu skýringar kæranda ekki þess eðlis að þær réttlæti höfnun á atvinnutilboði, sbr. 4. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Það sé því mat Vinnumálastofnunar að þær skýringar sem kærandi hafi fært fram í máli þessu geti ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun telji því að kærandi skuli sæta biðtíma í tvo mánuði frá ákvörðunardegi á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta lýtur að þeirri ákvörðun Vinnumálastofnunar að fella niður bótarétt kæranda í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Ákvæði 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 er svohljóðandi:

„Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Þá segir svo í 4. mgr. 57. gr. laganna:

„Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Í athugasemdum við 57. gr. í frumvarpi því er varð að lögunum kemur fram:

„Enn fremur þykir mikilvægt að það að hafna því að fara í atvinnuviðtal eða sinna ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar hafi sömu áhrif og sú ákvörðun að taka ekki starfi sem býðst. Ástæðan er einkum sú að atvinnuviðtal er venjulega meginforsenda þess að hinum tryggða verði boðið starf og þykir það mega leggja þá ákvörðun að jöfnu við því að hafna starfi. Verður að teljast óeðlilegt að hinn tryggði geti neitað því að fara í atvinnuviðtal án viðbragða frá kerfinu en þeir sem fóru í viðtalið og var boðið starfið þurfi að þola biðtíma eftir atvinnuleysisbótum taki þeir ekki starfinu.“

Samkvæmt gögnum málsins hafnaði kærandi starfstilboði hjá B og mætti ekki í boðað atvinnuviðtal hjá C. Kærandi hefur vísað til þess að hann hafi ætlað að sækja námskeið fyrir væntanlega kennara í samfélagsfræðslu á vegum Vinnumálastofnunar dagana 24. til 26. ágúst. Hann hafi reynslu af því að vinna með flóttamönnum og það henti honum því betur að taka að sér kennslu á því sviði. Kærandi kveðst hafa sett önnur störf á bið svo að hann myndi ekki missa af þessu tækifæri. Að mati úrskurðarnefndarinnar er ekki réttlætanlegt að hafna starfstilboði eða atvinnuviðtali á þeirri forsendu að vera skráður á þriggja daga námskeið á vegum Vinnumálastofnunar sem geti mögulega leitt af sér frekari tækifæri í starfi. Þá vísaði kærandi einnig til þess að hann hefði slæma reynslu af sumum fyrirtækjum í matvælaiðnaði. Það er mat úrskurðarnefndarinnar að þær ástæður og skýringar sem kærandi hefur gefið séu ekki þess eðlis að þær réttlæti höfnun á starfinu eða atvinnuviðtali, sbr. 4. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006. Úrskurðarnefndin bendir á að í 1. mgr. 13. gr. laganna er fjallað um almenn skilyrði þess að vera tryggður samkvæmt lögunum. Eitt af þeim skilyrðum er að vera í virkri atvinnuleit samkvæmt 14. gr. en í því felst meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt er fyrir, sbr. c. lið 1. mgr. ákvæðisins.

Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 25. ágúst 2021, um að fella niður bótarétt A, í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta