Vörðum leiðina saman: Opnir samráðsfundir í öllum landshlutum
Innviðaráðuneytið, í samvinnu við landshlutasamtök sveitarfélaga, býður íbúum í öllum landshlutum til opins samráðs á fjarfundum í október undir yfirskriftinni Vörðum leiðina saman.
Tilgangur samráðsfundanna er að gefa íbúum landsins og sveitarstjórnarfólki um land allt tækifæri til að hafa áhrif á stefnumótun í málaflokkum ráðuneytisins. Á fjarfundunum verður kastljósinu beint að framtíðaráskorunum í málaflokkunum. Meginviðfangsefni fundanna verða umræður um stefnumótun í samgöngum, sveitarstjórnarmálum og húsnæðis- og skipulagsmálum. Einnig verður fjallað um nýsamþykkta byggðaáætlun.
Öllum er velkomið að taka þátt í fjarfundunum, sem flestir verða haldnir milli kl. 15:00–17:00 á auglýstum fundardögum. Fundirnir verða haldnir í gegnum fjarfundarbúnaðinn Teams. Hægt er að skrá sig á vef fundaraðarinnar. Þátttakendur fá síðan boð í tölvupósti til að tengja sig á fundina. Skráningu lýkur daginn fyrir hvern fund.
Fundardagar:
- 10. október – Höfuðborgarsvæðið
- 11. október – Suðurland
- 18. október – Austurland
- 19. október – Norðurland eystra
- 20. október – Norðurland vestra
- 24. október – Vestfirðir
- 26. október – Vesturland
- 27. október – Suðurnes