Morgunverðarfundur - Heilbrigðisþjónusta á tímamótum: Ný viðhorf - nýjar lausnir - aukinn jöfnuður
Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra, boðar til morgunverðarfundar um heilbrigðisþjónustu á tímamótum í fyrramálið.
Morgunverðarfundurinn er fyrsti fundurinn af þremur sem heilbrigðisráðherra boðar til þar sem fundarefni eru þau tímamót sem eru í heilbrigðisþjónustunni. Þar á að ræða ný viðhorf, nýjar lausnir og hvernig auka má jöfnuð í heilbrigðisþjónustunni. Fyrsti fundurinn er í fyrramálið 19. mars og er hann opinn öllum og er starfsfólk í heilbrigðisþjónustunni hvatt til að mæta. Morgunverður og þátttökugjald er 1750 krónur.
Fundurinn er öllum opinn og starfsfólk heilbrigðisþjónustunnar er sérstaklega hvatt til að mæta.
Dagskrá
8:00 Morgunverður
8:15 Ávarp heilbrigðisráðherra, Ögmundar Jónassonar
8:20 Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands:
Kreppan, heilbrigðiskerfið og vinnutengd líðan Jóns og Gunnu
8:40 Sigurður Thorlacius, dósent við læknadeild Háskóla Íslands:
Tengsl atvinnuleysis og heilsufars
9:00 Inga Jessen, viðskiptafræðingur:
Að hafa endalausan tíma, atvinnulaus í kreppunni
9:10 Fyrirspurnir og umræður
9:30 Fundi slitið
Fundarstýra: Halla Gunnarsdóttir, aðstoðarkona heilbrigðisráðherra
Verð fyrir þátttöku og morgunverð: 1.750 kr.