Hoppa yfir valmynd
6. september 2019 Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherra tekur við skýrslu umboðsmanns barna 2018


Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tók við skýrslu umboðsmanns barna 2018 frá Salvöru Nordal, umboðsmanni barna í Stjórnarráðinu í morgun.

Í skýrslunni kemur fram að umboðsmaður átti frumkvæði að stefnumótandi umræðu um málefni barna og átti einnig í öflugu samstarfi við Hagstofu Íslands um birtingu tölulegra upplýsinga um stöðu barna. Aukin áhersla hefur verið lögð á að auka aðgengi barna að embættinu, styrkja starf ráðgjafarhóps og undirbúningur er hafinn að auknu samstarfi við börn á landsbyggðinni.

Þá voru teknar ákvarðanir af stjórnvöldum sem munu styrkja embættið til framtíðar s.s. breytingar sem gerðar voru á lögum embættisins til að skerpa á hlutverki þess auk þess sem lögfest er starfsemi ráðgjafarhópsins og sett í lög að embættið skuli halda þing um málefni barna annað hvert ár. Embættinu var einnig falið nýtt verkefni í endurskoðaðri fjármálaáætlun nýrrar ríkisstjórnar, að afla og miðla gögnum og upplýsingum um aðstæður og stöðu tiltekinni hópa barna á Íslandi, meðal annars með því að setja á fót sérfræðihópa barna. Þá voru auknar fjárveitingar til embættisins í fjárlögum þessa árs til að efla starfsemi stofnunarinnar.

Skýrsla umboðsmanns barna 2018

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta