Skráning stendur yfir á lýðræðisráðstefnuna 14. september
Skráning stendur enn yfir á ráðstefnuna Beint lýðræði og aukin þátttaka íbúa sem innanríkisráðuneytið stendur að í samráði við Reykjavíkurborg og fleiri miðvikudaginn 14. september næstkomandi.
Skráningu lýkur mánudaginn 12. september en aðgangur er heimill meðan húsrúm leyfir. Ráðstefnan fer fram í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur og hefst klukkan 10.15 og stendur til klukkan 17.