Niðurstöður um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum fyrir tímabilið janúar – júní 2022
Föstudaginn 10. desember 2021, rann út tilboðsfrestur í tollkvóta á blómum vegna fyrri hluta ársins 2022, sbr. reglugerð nr. 1294/2021.
Tvö tilboð bárust um innflutning á blómstrandi plöntum með knúppum eða blómum þó ekki kaktusar, úr tollskrárnúmerum (0602.9081-9083 og 0602.9088), samtals 4.200 stk., á meðalverðinu 106 kr./stk. Hæsta boð var 120 kr./stk. en lægsta boð var 90 kr./stk. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 2.200 stk. á meðalverðinu 112 kr./stk.
Tvö tilboð bárust um innflutning á pottaplöntum til og með 1 metri á hæð, þó ekki kaktusar og þykkblöðungar og plöntur af ættkvíslinni Bromilea og plönturnar Erica Gracilis og Calluna í tollskrárnúmeri (0602.9093), samtals 5.600 stk., á meðalverðinu 106 kr./stk. Hæsta boð var 120 kr./stk. en lægsta boð var 30 kr./stk. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 3.000 stk. á meðalverðinu 114 kr./stk.
Þrjú tilboð bárust um innflutning á rósum úr tollskrárnúmeri (0603.1100), samtals 6.000 stk., á meðalverðinu 42 kr./stk. Hæsta boð var 61 kr./stk. en lægsta boð var 19 kr./stk. Tilboðum var tekið frá einu fyrirtæki um innflutning á 2.000 stk. á meðalverðinu 61 kr./stk.
Fjögur tilboð bárust um innflutning á tryggðablómum úr tollskrárnúmeri (0603.1400), samtals 27.000 stk., á meðalverðinu 44 kr./stk. Hæsta boð var 60 kr./stk. en lægsta boð var 10 kr./stk. Tilboðum var tekið frá einu fyrirtæki um innflutning á 9.000 stk. á meðalverðinu 58 kr./stk.
Fjögur tilboð bárust um innflutning á afskornum blómum og blómknöppum sem notað er í vendi…. úr tollskrárnúmerum (0603.1903, 0603.1906-1908, 0603.1911-1918 og 0603.1999), samtals 371.250 stk. á meðalverðinu 40 kr./stk. Hæsta boð var 60 kr./stk. en lægsta boð var 5 kr./stk. Tilboði var tekið frá þremur fyrirtækjum um innflutning á 166.250 stk. á meðalverðinu 54 kr./stk.
Atvinnuvega- og nýsköpunararráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða þeirra:
Blómstrandi pottaplöntur janúar - júní 2022
Magn (stk) |
Tilboðsgjafi |
1.000 |
Garðheimar-Gróðurvörur ehf |
1.200 |
Húsasmiðjan/Blómaval |
Aðrar pottaplöntur janúar – júní 2022
Magn (stk) |
Tilboðsgjafi |
1.000 |
Garðheimar–Gróðurvörur ehf |
2.000 |
Húsasmiðjan/Blómaval |
Rósir janúar – júní 2022
Magn (stk) |
Tilboðsgjafi |
2.000 |
Grænn markaður ehf |
Tryggðablóm janúar – júní 2022
Magn (stk) |
Tilboðsgjafi |
9.000 |
Samasem ehf |
Afskorin blóm janúar – júní 2022
Magn (stk) |
Tilboðsgjafi |
1.829 |
Garðheimar-Gróðurvörur ehf |
30.000 |
Grænn markaður ehf |
134.421 |
Samasem ehf |
Reykjavík, 16. desember 2021
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið