Hoppa yfir valmynd
25. október 2018 Utanríkisráðuneytið

„Ég dó úr hungri átta ára“

Gladys Kyotungire. Ljósmynd: WFP - mynd

Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) frumsýnir á næstu vikum í kvikmyndahúsum í 34 löndum nýja sextíu sekúndna auglýsingu til að sýna þann missi þegar barn deyr úr sulti. Auglýsingin er einnig til kynningar á smáforriti WFP, Share the Meal. Í upphafi auglýsingarinnar sést Miriam, ung kona, á fundi með fréttamönnum þar sem hún er í þann veginn að greina frá nýjum uppgötvunum í læknisfræði.

En Miriam segir áhorfendum að engin tilkynning um læknisfræðilega uppgötvun verði kynnt því hún hafi ekki farið í læknanám eða fengið nokkra menntun. Með kuldalegri röddu sem breytist í rödd átta ára stúlkubarns segir Miriam: „Ég dó úr hungri átta ára.“

Auglýsingin þykir líkleg til að vekja athygli. Í grein á fréttaveitu Devex skrifar Carine Umuhumuza aðstoðarritstjóri að með auglýsingunni að horfið sé frá staðalímyndum um hungur með myndum af litlum svörtum og brúnum börnum með útbelgda maga og hor í nös, svokölluðu fátæktarklámi. Kosturinn við auglýsingu WFP sé sá að raunveruleg afrísk kona sé í aðalhlutverki og það sé hennar rödd sem greini frá örlögum stúlkunnar. Hina ímynduðu Miram Akede leikur Gladys Kyotungire frá Úganda, sem að mati WFP hafði til að bera persónuleika sem almenningur getur séð sem ósvikinn boðbera.

Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) er ein þriggja stofnana innan Sameinuðu þjóðanna sem utanríkisráðuenytið styður í neyðar- og mannaúðaraðstoð en stofnunin starfar á öllum helstu neyðarsvæðum í heiminum.

Miriam could have been me/ WFP

On Message: A new kind of hunger ad/ Devex

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

2. Ekkert hungur

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta