Hoppa yfir valmynd
10. nóvember 2016 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 286/2016

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 286/2016

Fimmtudaginn 10. nóvember 2016

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Arnar Kristinsson lögfræðingur og Agnar Bragi Bragason lögfræðingur.

Með kæru, dags. 27. júlí 2016, kærir A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 31. maí 2016, um að fella niður bótarétt hans í tvo mánuði.

I. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun þann 2. júlí 2015 og var umsókn hans samþykkt. Í byrjun apríl 2016 var ferilskrá kæranda send til fyrirtækis sem hafði auglýst eftir starfsmanni og í kjölfarið barst Vinnumálastofnun upplýsingar um að kærandi hefði ekki mætt í atvinnuviðtal hjá fyrirtækinu. Með bréfi, dags. 18. maí 2016, var óskað eftir skriflegum skýringum kæranda vegna höfnunar á atvinnuviðtali. Skýringar bárust frá kæranda með tölvupósti 24. maí 2016. Með bréfi, dags. 31. maí 2016, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði frá 1. júní 2016 á grundvelli 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála þann 27. júlí 2016. Með bréfi, dags. 3. ágúst 2016, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 13. september 2016, og var send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 14. september 2016. Athugasemdir bárust ekki.

II. Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hann hafi aldrei verið boðaður í viðtal hjá tilgreindu fyrirtæki en Vinnumálastofnun hafi ekki tekið þær skýringar gildar. Kærandi telur að atvinnurekandinn hafi gefið Vinnumálastofnun upp rangt nafn en það sé mikilvægt fyrir hann að fá sönnun þess efnis.

III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að ákvæði 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar eigi jafnt við um þann sem hafni starfi sem og þann sem hafni því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum bjóðist eða sinni ekki atvinnuviðtali. Eitt af skilyrðum þess að umsækjandi um atvinnuleysisbætur eigi rétt til greiðslna atvinnuleysistrygginga sé að vera í virkri atvinnuleit. Í 14. gr. laganna sé kveðið nánar á um hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Þar sé tekið fram að umsækjandi þurfi meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, vera reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi án sérstaks fyrirvara og hafa til þess vilja og getu. Þegar atvinnuleitandi sé boðaður í starfsviðtal í þeim tilgangi að fá hann til starfa en hann reynist ekki reiðubúinn að ganga í þau störf líti Vinnumálastofnun svo á að hann eigi að sæta viðurlögum á grundvelli 57. gr. laga nr. 54/2006.

Í 3. mgr. 57. gr. laganna séu tilgreindar ástæður sem geti komið til greina sem gildar skýringar við höfnun á starfi. Samkvæmt ákvæðinu sé Vinnumálastofnun heimilt að líta til aldurs, félagslegra aðstæðna tengdum skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima við ákvörðun um hvort hinn tryggði skuli sæta viðurlögum samkvæmt ákvæðinu. Enn fremur sé heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar í boði er starf fjarri heimili hans sem geri kröfur um að hlutaðeigandi flytji búferlum. Þá sé heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem geti ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis.

Vinnumálastofnun tekur fram að það liggi fyrir að kærandi hafi verið boðaður í atvinnuviðtal. Samkvæmt atvinnurekanda hafi kærandi samþykkt að mæta í viðtal en ekki mætt. Þegar Vinnumálastofnun hafi leitað eftir athugasemdum frá kæranda hafi hann hvorki kannast við fyrirtækið né að hafa verið boðaður í viðtal hjá atvinnurekanda. Í ljósi upplýsinga frá fyrirtækinu verði ekki fallist á skýringar kæranda. Vinnumálastofnun telur að kærandi hafi sannanlega fengið boðun í atvinnuviðtal sem hann hafi svo hafnað í skilningi 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 og því beri honum að sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins.

IV. Niðurstaða

Mál þetta lýtur að þeirri ákvörðun Vinnumálastofnunar að fella niður bótarétt kæranda í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Ákvæði 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 er svohljóðandi:

Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.

Þá segir svo í 4. mgr. 57. gr. laganna:

Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði vísvitandi leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi skráður á lista hjá tilteknu fyrirtæki yfir atvinnuleitendur sem fengu atvinnutilboð og í athugasemdum kemur fram að kærandi hafi ætlað að mæta í atvinnuviðtal en ekki komið. Á grundvelli þeirra upplýsinga tók Vinnumálastofnun þá ákvörðun að fella niður bótarétt kæranda í tvo mánuði. Af hálfu kæranda hefur komið fram að hann hafi ekki fengið boð í atvinnuviðtal hjá fyrirtækinu.

Við mat á því hvort heimilt sé að beita viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 57. gr. laganna kemur til skoðunar hvort kærandi hafi hafnað starfi eða atvinnuviðtali með sannanlegum hætti, enda um íþyngjandi ákvörðun að ræða. Að mati úrskurðarnefndarinnar verður því að gera þær kröfur að fyrirliggjandi gögn bendi eindregið til þess að rétt sé að beita því úrræði. Af gögnum málsins má ráða að Vinnumálastofnun hafi byggt hina kærðu ákvörðun á upplýsingum frá tilteknu fyrirtæki þrátt fyrir að kærandi hafi mótmælt þeim sem ósönnum. Ekki verður séð að stofnunin hafi óskað eftir frekari upplýsingum frá fyrirtækinu eða kannað nánar hvort skýringar kæranda ættu við rök að styðjast.

Samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hvílir sú skylda á stjórnvaldi að sjá til þess að eigin frumkvæði að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin í því. Markmið rannsóknarreglunnar er að tryggja að stjórnvaldsákvarðanir verði bæði löglegar og réttar. Með vísan til þess sem að framan er rakið er það mat úrskurðarnefndarinnar að Vinnumálastofnun hafi ekki upplýst mál kæranda nægjanlega, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga, áður en ákvörðun um að fella niður bótarétt kæranda var tekin. Hin kærða ákvörðun er því felld úr gildi og lagt fyrir Vinnumálastofnun að taka mál kæranda til nýrrar meðferðar.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 31. maí 2016, um að fella niður bótarétt A, í tvo mánuði er felld úr gildi og málinu vísað til stofnunarinnar til nýrrar meðferðar.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta