Hoppa yfir valmynd
27. mars 2024 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 198/2024 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 27. febrúar 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 198/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU24010112

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 27. janúar 2024 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Kína (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 18. janúar 2024, um að synja henni um vegabréfsáritun til Íslands.

Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og fallist verði á beiðni hennar um vegabréfsáritun til Íslands.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, með síðari breytingum, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

II.        Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 12. desember 2023, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir 22 daga dvöl frá 17. janúar til 7. febrúar 2024. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 18. janúar 2024. Hinn 27. janúar 2024 barst kærunefnd kæra frá kæranda. Frekari fylgigögn voru lögð fram með tölvubréfum kæranda, dags. 29. og 31. janúar 2024.

III.    Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda, dags. 25. janúar 2024, vísar kærandi til fyrirhugaðrar ferðar sinnar til Íslands. Kærandi kveðst vera námsmaður og hafi hug á því að sinna sjálfsboðastörfum í vetrar- og sumarfríum sínum til þess að efla sjálfa sig á meðan hún gefi til baka til samfélagsins. Í framhaldsskóla hafi kærandi sinnt fleiri en tíu sjálfboðastörfum í heimaríkinu og unnið yfir 80 klukkustundir. Kærandi hafi verið áhugasöm um sjálfboðastörf hjá [...], og eftir að hafa átt í samskiptum við fólk á vegum [...] hafi kærandi boðið fram krafta sína. Þar að auki hafi Ísland margt fram á að færa og vonist kærandi eftir því að fá nokkra daga til þess að upplifa landið af eigin raun áður en hún hefji sjálfboðaliðastörf. Vorönn í háskóla kæranda hefjist að nýju 26. febrúar 2024 og muni hún halda aftur til heimaríkis svo hún geti haldið námi sínu áfram þar. Þá hafi kærandi breytt áætlun sinni og fært til fyrirhuguð sjálfboðastörf vegna tafa á umsókn hennar um vegabréfsáritun.

Meðal fylgigagna sem lögð voru fram á kærustigi eru upplýsingar um fyrri sjálfboðastörf kæranda, ferðaáætlun og bókanir fyrir flug og hótel.

IV.    Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Ríkisborgarar Kína þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í tilteknum tilvikum. Meðal þeirra tilvika sem tilgreind eru í ákvæðinu er ef umsækjandi getur ekki fært rök fyrir tilgangi eða skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar, sbr. ii.-lið a-liðar ákvæðisins, eða ef rökstudd ástæða sé til að draga í efa að fylgiskjöl, sem umsækjandi leggur fram, séu ósvikin eða að innihald þeirra sé rétt, eða áreiðanleika framburðar umsækjanda eða ásetning hans til að yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin sem sótt er um rennur út, sbr. b-lið ákvæðisins.

Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað form sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsóknum sé synjað. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reiti 2, þ.e. að ekki voru færð rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar. Ákvörðuninni fylgdu viðbótarathugasemdir, þar sem fram kemur að kæranda bæri að sækja um dvalarleyfi vegna eðli vinnunnar sem hún hygðist sinna hér á landi. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hún gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar í máli kæranda.

Meðferð umsókna kærenda fór fram hjá íslenska sendiráðinu í Peking, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

Líkt og fram kemur í hinni kærðu ákvörðun hafi kæranda borið að sækja um dvalarleyfi vegna eðli vinnunnar sem hún hygðist sinna hér á landi. Hin fyrirhugaða sjálfboðavinna felst einkum í garðyrkju og öðrum störfum fyrir skógrækt. Í málayfirliti Útlendingastofnunar er vísað til samráðs við Vinnumálastofnun sem telji fyrirhugaða sjálfboðavinnu ólaunaða vinnu við það sem kalla megi efnahagslega starfsemi, þ.e. störfin skapi verðmæti á markaði. Kærunefnd hefur nú yfirfarið gögn málsins og málatilbúnað kæranda og tekur undir með Útlendingastofnun að kæranda beri að sækja um dvalarleyfi vegna hinnar fyrirhuguðu dvalar, svo sem á grundvelli 67. gr. laga um útlendinga eða eftir ákvæðum VI. kafla laganna. Verður hin kærða ákvörðun um að synja kæranda um vegabréfsáritun til landsins því staðfest.

Kærunefnd bendir kæranda á að hún geti sótt um dvalarleyfi á grundvelli framangreindra lagaákvæða. Með þessum athugasemdum hefur kærunefnd þó ekki tekið afstöðu til skilyrða fyrir útgáfu slíkra dvalarleyfa.   

Að öllu framangreindu virtu tekur kærunefnd undir það mat Útlendingastofnunar að ekki væru færð rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar, sbr. ii-lið a-liðar 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir, sbr. og d-lið 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun um að synja kæranda um vegabréfsáritun til landsins því staðfest.

 

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta