Opnað fyrir umsóknir um fyrirframgreiðslur jarðræktarstyrkja til kornræktar
Matvælaráðuneytið hefur opnað fyrir umsóknir um fyrirframgreiðslur jarðræktarstyrkja til kornræktar.
Kornræktendur sem stofna umsókn í Afurð fyrir 15. júní 2024, geta sótt um fyrirframgreiðslu vegna kornræktar sem miðast að jafnaði við 25% af einingaverði á hektara jarðræktarstyrks fyrra árs. Ekki er greidd fyrirframgreiðsla vegna annarrar ræktunar en kornræktar og mun fyrirframgreiðslan koma til frádráttar jarðræktarstuðningi sem kemur til greiðslu í desember.
Stofnað er til umsóknar í Afurð vegna fyrirframgreiðslunnar og í umsókn skal skrá fjölda hektara sem sáð er í fyrir korni.
Almennur umsóknarfrestur vegna jarðræktarstyrkja og landgreiðslna verður eftir sem áður 1. október 2024.