Hoppa yfir valmynd
1. júlí 2015 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 92/2014

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða 1. júlí 2015 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A,  nr. 92/2014.

1. Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 30. október 2014, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að Vinnumálastofnun hefði ákveðið á grundvelli 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar þar sem hún hafi verið við vinnu samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur. Var það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli ekki eiga rétt á atvinnuleysisbótum fyrr en hún hafi starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði. Kæranda var einnig gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur, að viðbættu 15% álagi, samtals að fjárhæð 43.868 krónur. Mál kæranda var tekið fyrir að nýju hjá Vinnumálastofnun í kjölfar erindis frá Eflingu stéttarfélagi sem barst stofnuninni þann 14. nóvember 2014. Með bréfi, dags. 4. desember 2014, var kæranda tilkynnt sú ákvörðun stofnunarinnar að staðfesta fyrri ákvörðun, þar sem að sú ákvörðun hefði að geyma efnislega réttar niðurstöðu í máli hennar þrátt fyrir ný framkomin gögn. Kærandi vildi ekki una ákvörðun Vinnumálastofnunar og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 1. desember 2014. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Vinnumálastofnun telur að rétt hafi verið staðið að ákvörðun í máli kæranda.

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun þann 3. júlí 2014. Með bréfi, dags. 7. október 2014, var kæranda tilkynnt að við samkeyrslu gagnagrunna Vinnumálastofnunar og ríkisskattstjóra hafi komið fram upplýsingar um ótilkynntar tekjur kæranda í júlí 2014 vegna vinnu hjá B að fjárhæð 96.908 krónur. Í bréfinu var óskað eftir skriflegum skýringum á ótilkynntum tekjum.

Þann 9. október 2014 barst Vinnumálastofnun tilkynning um tekjur frá kæranda. Þann 10. október barst svo skýringarbréf frá kæranda vegna fyrrgreindra ótilkynntra tekna, ásamt launaseðli frá  B fyrir júlímánuð. Kvaðst kærandi hafa verið sagt upp af B þann 2. júlí 2014 án fyrirvara og hafi hún þá neyðst til að hafa samband við Vinnumálastofnun. Um mánaðarmótin hafi hún svo fengið greidd laun frá fyrrgreindu fyrirtæki þrátt fyrir að hafa ekkert unnið í júlí. Hún kvaðst enga skýringu hafa á þessum launum, en hana gruni að þetta séu eins konar sárabætur vegna uppsagnarinnar. Jafnframt kvaðst hún ekki hafa vitað hvernig þetta ætti að tilkynnast.

Með bréfi, dags. 30. október 2014, var kæranda tilkynnt viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar. Þann 11. nóvember 2014 barst Vinnumálastofnun erindi frá Eflingu stéttarfélagi varðandi mál kæranda þar sem fram kemur að síðasti vinnudagur kæranda hjá B hafi verið 11. júlí 2014. Meðfylgjandi erindinu voru launaseðlar frá B vegna júní og júlí 2014. Í kjölfarið var mál kæranda tekið fyrir að nýju hjá stofnuninni. Með bréfi, dags. 4. desember 2014, var kæranda tilkynnt sú ákvörðun stofnunarinnar að staðfesta fyrri ákvörðun.

Kærandi greinir frá því í kæru að hún hafi unnið hjá B frá maí 2014 til júní sama ár en þau hafi sagt henni upp 2. júlí 2014. Hún hafi fengið greidda upphæð þann 1. ágúst frá B en hún kveðst ekki vita hvers vegna sú upphæð hafi verið greidd henni. Hún hafi talað við Eflingu og í ljós hafi komið að B hafi greitt henni uppsagnarfrestinn og skrifað á launaseðilinn að hún hafi unnið 100% vinnu í júlí, sem hún kveðst ekki hafa gert. Fram kemur að kærandi telji fyrri ákvörðun Vinnumálastofnunar, sem síðar var staðfest, ranga. Hún telji ekki réttlátt að hún eigi að greiða svona háa upphæð vegna mistaka hjá fyrirtækinu sem hún hafi unnið hjá. Starfsmaður hjá Eflingu hafi hringt í vinnuveitanda hennar sem tjáði honum að þetta væru laun í uppsagnarfresti en ekki laun vegna vinnuframlags.

Í greinargerð til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 20. janúar 2015, kemur fram að mál þetta lúti að ákvörðun Vinnumálastofnunar þar sem kæranda hafi verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli 60. gr. laga um atvinnuleysistrygginga og endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur á grundvelli 2. mgr. 39. gr. laganna. Bent er á að annar málsliður 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar taki á því þegar atvinnuleitandi starfi á vinnumarkaði, til lengri eða skemmri tíma, samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur og án þess að hafa uppfyllt skyldu sína skv. 10. og 35. gr. a.  laga um atvinnuleysistryggingar um að upplýsa Vinnumálastofnun um störf sín. Af ákvæðinu leiði að sá sem ekki tilkynni Vinnumálastofnun um að atvinnuleit sé hætt samkvæmt 10. gr. laganna eða um tilfallandi vinnu samkvæmt 35. gr. a laganna skuli sæta viðurlögum á grundvelli þess. Fram komi í 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar að það sé skilyrði fyrir því að launamaður teljist vera tryggður í skilningi laganna að hann sé í virkri atvinnuleit. Í 14. gr. sömu laga sé að finna nánari útfærslu á því hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Ljóst sé að aðili sem starfi á vinnumarkaði geti hvorki talist vera án atvinnu né í virkri atvinnuleit í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.

Á þeim sem fái greiðslur atvinnuleysistrygginga frá Vinnumálastofnun hvíli rík skylda til að sjá til þess að stofnunin hafi réttar upplýsingar um hagi viðkomandi. Í lögum um atvinnuleysistryggingar sé að finna ákvæði þar sem þessi skylda sé ítrekuð. Þannig segi í 3. mgr. 9. gr. laganna að sá sem teljist tryggður á grundvelli laga þessara skuli upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunni að verða á högum hans á þeim tíma er hann fái greiddar atvinnuleysistryggingar eða annað það sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, svo sem um tekjur sem hann fái fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan standi yfir eða ef atvinnuleit sé hætt.

Vinnumálastofnun bendir á að við samkeyrslu gagnagrunna Vinnumálastofnunar og ríkisskattstjóra hafi komið í ljós að kærandi hafi verið með tekjur frá B í febrúar 2014[sic] að fjárhæð 96.908 krónur. Í skýringum til stofnunarinnar kvaðst kærandi ekkert hafa unnið í júlí 2014 og þar af leiðandi haldið að þessar greiðslur væru vegna mistaka, eða þá eins konar sárabætur vegna uppsagnarinnar. Jafnframt kvaðst hún ekki hafa vitað hvernig hún ætti að tilkynna þessar tekjur.

Samkvæmt erindi frá stéttarfélaginu Eflingu sé staðfest að síðasti vinnudagur kæranda hjá B hafi verið 11. júlí 2014, en kærandi hafi fengið greiddar atvinnuleysisbætur frá og með 3. júlí 2014. Kærandi hafi ekki tilkynnt Vinnumálastofnun fyrirfram um þessa vinnu sína, en rík skylda hvíli á þeim sem njóta greiðslna atvinnuleysistrygginga að sjá til þess að stofnunin hafi réttar upplýsingar sem geta ákvarðað bótarétt viðkomandi.

Í ljósi afdráttarlausrar verknaðarlýsingar í 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og þeirrar skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum að tilkynna til stofnunarinnar að atvinnuleit sé hætt eða tilkynningu um tekjur sbr. 10. gr. og 35. gr. a. laga nr. 54/2006, verði að telja kæranda hafa brugðist skyldum sínum við stofnunina og eigi að sæta viðurlögum í samræmi við brot sitt.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 23. janúar 2015, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 6. febrúar 2015. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

2. Niðurstaða

Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, sbr. 23. gr. laga nr. 134/2009 og 4. gr. laga nr. 103/2011:

Sá sem lætur vísvitandi hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða veitir vísvitandi rangar upplýsingarsem leiða til þess að hann telst ranglega tryggður að fullu eða að hluta samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði áður en hann sækir aftur um atvinnuleysisbætur. Hið sama gildir um þann sem starfar á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um að atvinnuleit sé hætt skv. 10. gr. eða um tilfallandi vinnu skv. 35. gr. a. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.

Þá segir í 35. gr. a:

Þeim sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum ber að tilkynna til Vinnumálastofnunar með að minnsta kosti eins dags fyrirvara um tilfallandi vinnu sem hann tekur á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur skv. 32. eða 33. gr. eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum. Heimilt er þó að tilkynna samdægurs um tilfallandi vinnu enda sé um að ræða tilvik sem er þess eðlis að mati Vinnumálastofnunar að ekki var unnt að tilkynna um hina tilfallandi vinnu fyrr. Í tilkynningunni skulu meðal annars koma fram upplýsingar um hver vinnan er, um vinnustöðina og um lengd þess tíma sem hinni tilfallandi vinnu er ætlað að vera.

Í meðförum úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða hefur ákvæði 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar verið túlkað með þeim hætti að fyrsti málsliður þess eigi við ef atvinnuleitandi hefur með vísvitandi hætti hegðað sér með tilteknum hætti á meðan slíkt huglægt skilyrði á ekki við ef háttsemin fellur undir annan málslið ákvæðisins. Þessi munur stafar af því að annar málsliðurinn tekur á því þegar atvinnuleitandi starfar á vinnumarkaði, til lengri eða skemmri tíma, samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur og án þess að hafa uppfyllt skyldu sína skv. 10. gr. og 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar að upplýsa Vinnumálastofnun um þessa atvinnuþátttöku. Vinnumálstofnun byggir á því að háttsemi kæranda falli undir síðari málsliðinn.

Ágreiningur málsins lýtur að því hvort kærandi hafi starfað hjá fyrirtækinu B á sama tíma og hún fékk greiddar atvinnuleysisbætur. Af hálfu kæranda er byggt á því að henni hafi verið sagt upp þann 2. júlí 2015 og því hafi hún verið atvinnulaus í júlí. Samkvæmt  bréfi Eflingar, dags. 14. nóvember 2014, var síðasti vinnudagur kæranda hjá B 11. júlí 2014. Kærandi fékk hins vegar greiddar atvinnuleysisbætur frá og með 3. júlí 2014. Úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða telur að ráða megi af framangreindu að kærandi hafi verið starfandi á innlendum vinnumarkaði í skilningi 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar samhliða töku atvinnuleysisbóta.

Af gögnum málsins verður ekki ráðið að kærandi hafi tilkynnt Vinnumálastofnun um þessa vinnu sína. Atvinnuleitendum sem þiggja atvinnuleysisbætur ber að tilkynna Vinnumálastofnun um tilfallandi vinnu skv. 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar. Í 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er jafnframt kveðið á um þá skyldu atvinnuleitanda að upplýsa Vinnumálastofnun um breytingar á högum viðkomandi eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, eins og námsþátttöku og tekjur fyrir tilfallandi vinnu.

Í ljósi afdráttarlausrar verknaðarlýsingar í 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og þeirrar skyldu atvinnuleitanda sem kveðið er á um í 35. gr. a. sömu laga, verður að telja að kærandi hafi brugðist trúnaðar- og upplýsingaskyldum sínum gagnvart Vinnumálastofnun. Háttsemi kæranda hefur því réttilega verið heimfærð til ákvæðis 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kæranda ber því að sæta viðurlögum þeim sem þar er kveðið á um, enda var hún starfandi á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hún þáði atvinnuleysisbætur án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um tilfallandi vinnu eða um tekjur. Þá er ákvæði 60. gr. fortakslaust en í því felst að ekki er heimild til að beita vægari úrræðum en ákvæðið kveður á um. Skal kærandi ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hún hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði.

Í 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er fjallað um leiðréttingar á atvinnuleysisbótum og hljóðar 2. mgr. lagagreinarinnar svo:

Hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur skv. 32. eða 33. gr. en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða öðrum ástæðum ber honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildir um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hefur fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Fella skal niður álagið samkvæmt þessari málsgrein færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.

Þá er fjallað um frádrátt vegna tekna í 36. gr. laganna. Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun byggist endurgreiðslukrafa stofnunarinnar á því að kærandi hafi fengið ofgreiddar bætur vegna tekna. Þær greiðslur sem kærandi hlaut frá B í júlímánuði 2014 eru umfram frítekjumark 4. mgr. 36. gr.  laga um atvinnuleysistryggingar og skerða því atvinnuleysisbæturnar skv. 1. mgr. 36. gr. laganna. Samkvæmt 1. málsl. 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar ber kæranda því að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur auk 15% álags.

Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.

  

Úrskurðarorð

Hin kærða ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 4. desember 2014 í máli A, þess efnis að staðfesta fyrri viðurlagaákvörðun í máli kæranda, er staðfest.

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta