Hoppa yfir valmynd
30. júlí 2015 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 15/2015

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða hinn 30. júlí 2015 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A, nr. 15/2015.

1. Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 15. október 2014, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að Vinnumálastofnun hefði ákveðið á grundvelli 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar þar sem hún hafi verið við vinnu samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur. Var það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skyldi ekki eiga rétt á atvinnuleysisbótum fyrr en hún hefði starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði. Kæranda var einnig gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur samtals að fjárhæð 44.435 kr. með 15% álagi.

Mál kæranda var tekið fyrir að nýju hjá Vinnumálastofnun í kjölfar erindis frá kæranda sem barst stofnuninni þann 23. október 2014. Með bréfi, dags. 11. nóvember 2014, tilkynnti Vinnumálstofnun kæranda að það hafi verið mat stofnunarinnar að staðfesta bæri fyrri ákvörðun, enda hafi sú ákvörðun að geyma efnislega rétta niðurstöðu þrátt fyrir að ný gögn í málinu hafi borist. Með tölvupósti til Vinnumálastofnunar þann 24. nóvember 2014 óskaði kærandi eftir rökstuðningi stofnunarinnar og var rökstuðningur veittur með bréfi, dags. 11. desember 2014. Kærandi vildi ekki una ákvörðun Vinnumálastofnunar og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 4. febrúar 2015. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Vinnumálastofnun telur að rétt hafi verið staðið að ákvörðun í máli kæranda.

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun þann 23. september 2013 og reiknaðist með 32% bótarétt. Með bréfi, dags. 8. september 2014, var kæranda tilkynnt að við samkeyrslu gagnagrunna Vinnumálastofnunar og ríkisskattstjóra hafi komið fram upplýsingar um ótilkynntar tekjur kæranda í júní 2014 vegna vinnu hjá Ríkissjóði Íslands að fjárhæð 132.928 kr. Í bréfinu var óskað eftir skriflegum skýringum á ótilkynntum tekjum.

Með bréfi, dags. 15. október 2014, var kæranda tilkynnt um viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar.

Þann 23. október 2014 barst Vinnumálastofnun erindi frá kæranda þar sem hún greinir frá því að hún hafi í lok maí 2014 tilkynnt með símtali að hún hafi fengið tímabundna atvinnu í þrjá mánuði hjá B, frá 1. júní til 1. september 2014 að jafnaði þrjár klukkustundir á dag fimm daga vikunnar. Hún hafi jafnframt verið að vinna fyrir C. Að sögn kæranda hafi Vinnumálastofnun verið upplýst um störf kæranda og hefur hún aldrei vísvitandi svikið eða svindlað. Í kjölfarið, þann 6. nóvember 2014, var mál kæranda tekið fyrir að nýju hjá stofnuninni. Með bréfi, dags. 11. nóvember 2014, var kæranda tilkynnt um ákvörðunina.  

Þann 24. nóvember 2014 barst stofnuninni beiðni frá kæranda um rökstuðning sem var birtur henni með bréfi, dags. 11. nóvember 2014.

Af hálfu kæranda kemur fram í kæru, dags. 4. febrúar 2015, að veturinn 2013–2014 hafi hún starfað við C níu klukkustundir á viku. Samhliða því fékk hún greiddar atvinnuleysisbætur. Þann 22. maí 2014 hafi hún staðfest símleiðis við Vinnumálastofnun áframhaldandi atvinnuleit sína. Þann 23. maí 2014 hafi hún farið á skrifstofu Vinnumálastofnunar á D og tjáð þjónustufulltrúa að hún hafi fengið tímabundna vinnu um sumarið, sirka 15 tíma á viku. Í kjölfarið hafi hún óskað eftir skattkorti sínu sem lá inni hjá Greiðslustofu.

Kærandi hafi í gegnum tíðina aflað sér þeirrar vinnu sem mögulegt hafi verið fyrir hana að fá. Þjónustufulltrúar Vinnumálastofnunar hafi staðfest símleiðis að kærandi hafi alla tíð sinnt þeirri upplýsinga- og tilkynningarskyldu sem á henni hafi hvílt og hún hafi aldrei orðið uppvís að nokkru nema heiðarleika og samviskusemi gagnvart Vinnumálastofnun. Síðastliðið vor hafi kærandi tilkynnt Vinnumálastofnun að hún yrði í meiri vinnu yfir sumarið en sú tilkynning sé ekki skráð í bækur Vinnumálastofnunar, en ósk hennar um að fá skattkortið sent sé trúlega til hjá stofnuninni.

Kæranda sé ljóst að hún hafi borið ábyrgð á að tilkynna væntanlegar launatekjur til Vinnumálastofnunar formlega sem hún hafi gleymt að gera. Þau mistök hennar hafi leitt til endurgreiðslu bóta og réttleysi kæranda til bóta næsta ári skv. 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Augljóslega sé gert ráð fyrir að kærandi hafi vísvitandi aflað sér atvinnuleysisbóta með svikum. Ekki sé horft til hennar skilvísu sögu hjá stofnuninni eða þeirrar staðreyndar að hún hafi tilkynnt munnlega að hún hafi fengið vinnu um sumarið og hafi þar af leiðandi fengið skattkortið sent heim. Þá hafi kærandi verið í vinnu hjá ríkisstofnun og hafi því ekki haft möguleika á að fela tekjur sínar á nokkurn hátt hefði hún haft áhuga á því. Vinnuna hjá E, sem hafi verið samtals 20 tímar yfir allt sumarið, hafi kærandi gefið upp þegar henni hafi orðið mistök sín ljós.

Kærandi hafi ekki með nokkru móti ætlað að afla sér atvinnuleysisbóta með svikum eða á ólöglegan hátt. Hún hafi sent allar upplýsingar og sýnt fullan samstarfsvilja þegar henni hafi orðið ljóst að hún hafi gleymt að tilkynna um launafjárhæðirnar. Þá hafi hún sýnt í verki að hún hafi sóst eftir vinnu á svæðinu og hafi einungis þegið atvinnuleysisbætur þegar ekki hafi verið vinnu að fá. Þá sýni saga hennar hjá Vinnumálastofnun ekkert nema skilvísi og samviskusemi á allan hátt.

Að því er virðist hafi Vinnumálastofnun ekki tekið tillit til sögu eða aðstæðna kæranda við ákvörðunina. Kærandi óski nú eftir því að fyrri úrskurður verði endurskoðaður að teknu tilliti til þess að ekki var um vísvitandi brot að ræða heldur mistök sem rakin hafi verið. Þannig óski hún eftir að réttur hennar til atvinnuleysisbóta verði óskertur á árinu 2014 miðað við þær tekjur sem hún hafi haft og áframhaldandi réttur samkvæmt gildandi forsendum.

Þær atvinnuleysisbætur sem kærandi annars ætti rétt á skipti gríðarlega miklu máli til framfærslu hennar þar sem hún hafi einungis tekjur fyrir þær níu klukkustundir á viku hjá sveitarfélaginu sem C enda séu atvinnuleysisbætur hugsaðar til framfærslu þeirra sem ekki hafa kost á að vinna.

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 11. mars 2015, segir að mál þetta lúti að ákvörðun Vinnumálastofnunar þar sem kæranda hafi verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli 60. gr. laga um atvinnuleysistrygginga. Kæranda hafi einnig verið gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur á grundvelli 2. mgr. 39. gr. laganna.

Bent er á að annar málsliður 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar taki á því þegar atvinnuleitandi starfi á vinnumarkaði, til lengri eða skemmri tíma, samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur og án þess að hafa uppfyllt skyldu sína skv. 10. og 35. gr. a. laga um atvinnuleysistryggingar um að upplýsa Vinnumálastofnun um störf sín. Fram komi í 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar að það sé skilyrði fyrir því að launamaður teljist vera tryggður í skilningi laganna að hann sé í virkri atvinnuleit. Í 14. gr. sömu laga sé að finna nánari útfærslu á því hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Ljóst sé að aðili sem starfi á vinnumarkaði geti hvorki talist vera án atvinnu né í virkri atvinnuleit í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.

Á þeim sem fái greiðslur atvinnuleysistrygginga frá Vinnumálastofnun hvíli rík skylda til að sjá til þess að stofnunin hafi réttar upplýsingar um hagi viðkomandi. Í lögum um atvinnuleysistryggingar sé að finna ákvæði þar sem þessi skylda sé ítrekuð. Þannig segi í 3. mgr. 9. gr. laganna að sá sem teljist tryggður á grundvelli laga þessara skuli upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fái greiddar atvinnuleysistryggingar eða annað það sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, svo sem um tekjur sem hann fái fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir eða ef atvinnuleit sé hætt.

Vinnumálastofnun bendir á að við samkeyrslu gagnagrunna Vinnumálastofnunar og ríkisskattstjóra hafi komið í ljós að kærandi hafi verið með tekjur hjá B sem hún hafi ekki tilkynnt stofnuninni um. Í skýringum kæranda til stofnunarinnar kveðst hún hafa tilkynnt um vinnu sína hjá B með símtali í lok maí. Samkvæmt upplýsingum úr samskiptasögu kæranda hjá Vinnumálastofnun hafi hún staðfest atvinnuleit sína þann 22. maí 2014 og þann 16. júní 2014 hafi kærandi óskað eftir að fá skattkort sent heim. Verði því ekki séð að kærandi hafi tilkynnt um að hún hafi hafið störf hjá B eða um þær tekjur sem af starfinu hafi hlotist. Rík skylda hvíli á þeim sem njóta greiðslna atvinnuleysistrygginga að sjá til þess að stofnunin hafi réttar upplýsingar sem geta ákvarðað bótarétt viðkomandi. Í ljósi afdráttarlausrar verknaðarlýsingar í 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og þeirrar skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum að tilkynna til stofnunarinnar að atvinnuleit sé hætt eða tilkynningu um tekjur, sbr. 10. gr. og 35. gr. a. laga um atvinnuleysistryggingar, verði að telja að kærandi hafi brugðist skyldum sínum við stofnunina og eigi að sæta viðurlögum í samræmi við brot sitt.

Samkvæmt ofangreindu hafi kærandi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 44.435 kr. með 15% álagi sem henni beri að endurgreiða, sbr. 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

 Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 11. mars 2015, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 30. mars 2015. Athugasemdir bárust með bréfi dags. 24. mars 2015 þar sem fram kemur að í fyrsta lagi sé kæranda stórlega misboðið að henni sé ætlað að hafa svikið fé út úr ríkissjóði í gegnum Vinnumálastofnun. Hún hafi alla tíð skilað öllum sínum sköttum og gjöldum til hins opinbera og sýnt samviskusemi og heiðarleika í samskiptum við opinberar stofnanir svo og aðra.

Í öðru lagi skilji kærandi ekki afhverju Vinnumálastofnun velji að hunsa þá staðreynd að hún hafi tilkynnt um starf sitt hjá B til Vinnumálastofnunar síðastliðið sumar eða í lok maí áður en hún hafi hafið störf þar. Þá liggi fyrir að hún hafi óskað eftir að fá skattkort sitt sent heim í júní, augljóslega til að nota það vegna aukinna tekna. Hins vegar hafi henni láðst að tilkynna um tekjufjárhæðir, sem hún hafi þó gengist við um leið og henni hafi verið bent á mistök sín. Þegar að hún hafi fengið tilkynningu síðastliðið haust frá Vinnumálstofnun um að hún hafi ekki lengur rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta hafi augljóslega verið tilgangslaust að skrá sig í atvinnuleit hjá Vinnumálastofnun.

Í ljósi þessa sé ljóst að hún hafi ekki vísvitandi látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem hafi orðið á atvinnuhögum hennar.

Vinnumálastofnun virðist ekki hafa tekið tillit til samskiptasögu hennar við Vinnumálastofnun þar sem liggi fyrir að hún hafi ávallt skilað því sem henni hafi borið eða að hún hafi tilkynnt um aukna vinnu í lok maí inn á skrifstofu Vinnumálastofnunar á D. Þar séu orð hennar höfð að engu. Úrskurðurinn sé að öllu leyti Vinnumálastofnun í vil og ekki að nokkru leyti tekið tillit til þess sem hún hafi um málið að segja. Að sjálfsögðu sé eðlilegt að hún greiði til baka ofgreiddar atvinnuleysisbætur frá sumrinu 2014 en að af henni sé tekinn réttur til bóta frá haustinu 2014 í eitt ár finnist henni harður dómur í ljósi fyrir sögu og gerir afkomu hennar erfiða.

Bréf frá F, stéttarfélagi X, dags. 26 mars 2015, barst úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða 27. mars 2015 en þar kemur fram að kærandi, félagsmaður í X, hafi leitað á skrifstofu stéttarfélaganna á Y vegna samskipta við Vinnumálastofnun. X skori á úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða að endurskoða hina kærðu ákvörðun. Það sé ekki óeðlilegt að kærandi endurgreiði ofgreiddar atvinnuleysisbætur en að svipta hana atvinnuleysisbótum í eitt ár á þeim forsendum að hún hafi vísvitandi ekki látið vita að hún væri komin með vinnu sé afar óeðlilegt og stenst ekki.

2. Niðurstaða

Mál þetta lýtur að túlkun á 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, sbr. 23. gr. laga nr. 134/2009 og 4. gr. laga nr. 103/2011:

Sá sem lætur vísvitandi hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða veitir vísvitandi rangar upplýsingarsem leiða til þess að hann telst ranglega tryggður að fullu eða að hluta samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði áður en hann sækir aftur um atvinnuleysisbætur. Hið sama gildir um þann sem starfar á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um að atvinnuleit sé hætt skv. 10. gr. eða um tilfallandi vinnu skv. 35. gr. a. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.

Þá segir í 35. gr. a:

Þeim sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum ber að tilkynna til Vinnumálastofnunar með að minnsta kosti eins dags fyrirvara um tilfallandi vinnu sem hann tekur á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur skv. 32. eða 33. gr. eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum. Heimilt er þó að tilkynna samdægurs um tilfallandi vinnu enda sé um að ræða tilvik sem er þess eðlis að mati Vinnumálastofnunar að ekki var unnt að tilkynna um hina tilfallandi vinnu fyrr. Í tilkynningunni skulu meðal annars koma fram upplýsingar um hver vinnan er, um vinnustöðina og um lengd þess tíma sem hinni tilfallandi vinnu er ætlað að vera.

Í meðförum úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða hefur ákvæði 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar verið túlkað með þeim hætti að fyrsti málsliður þess eigi við ef atvinnuleitandi hefur með vísvitandi hætti hegðað sér með tilteknum hætti á meðan slíkt huglægt skilyrði á ekki við ef háttsemin fellur undir annan málslið ákvæðisins. Þessi munur stafar af því að annar málsliðurinn tekur á því þegar atvinnuleitandi starfar á vinnumarkaði, til lengri eða skemmri tíma, samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur og án þess að hafa uppfyllt skyldu sína skv. 10. gr. og 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar að upplýsa Vinnumálastofnun um þessa atvinnuþátttöku. Vinnumálstofnun byggir á því að háttsemi kæranda falli undir síðari málsliðinn.

Samkvæmt gögnum málsins starfaði kærandi hjá B í júní 2014. Úrskurðarnefnd atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerða telur því ljóst að kærandi hafi verið starfandi á innlendum vinnumarkaði í skilningi 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar samhliða töku atvinnuleysisbóta.

Af gögnum málsins verður ekki ráðið að kærandi hafi tilkynnt Vinnumálastofnun um þessa vinnu sína. Atvinnuleitendum sem þiggja atvinnuleysisbætur ber að tilkynna Vinnumálastofnun um tilfallandi vinnu skv. 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar. Í 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er jafnframt kveðið á um þá skyldu atvinnuleitanda að upplýsa Vinnumálastofnun um breytingar á högum viðkomandi eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, eins og námsþátttöku og tekjur fyrir tilfallandi vinnu.

Þrátt fyrir athugasemdir kæranda og X þá er afstaða úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða sú að ekki hefur verið sýnt fram á að kærandi hafi tilkynnt Vinnumálastofnun um vinnu sína.

Í ljósi afdráttarlausrar verknaðarlýsingar í 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og þeirrar skyldu atvinnuleitanda sem kveðið er á um í 35. gr. a sömu laga verður að telja að kærandi hafi brugðist trúnaðar- og upplýsingaskyldum sínum gagnvart Vinnumálastofnun. Háttsemi kæranda hefur því réttilega verið heimfærð til ákvæðis 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kæranda ber því að sæta viðurlögum þeim sem þar er kveðið á um, enda var hún starfandi á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hún þáði atvinnuleysisbætur án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um tilfallandi vinnu eða um tekjur. Þá er ákvæði 60. gr. fortakslaust en í því felst að ekki er heimild til að beita vægari úrræðum en ákvæðið kveður á um. Skal kærandi ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hún hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði.

Í 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er fjallað um leiðréttingar á atvinnuleysisbótum og hljóðar 2. mgr. lagagreinarinnar svo:

Hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur skv. 32. eða 33. gr. en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða öðrum ástæðum ber honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildir um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hefur fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Fella skal niður álagið samkvæmt þessari málsgrein færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.

Samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar ber því kæranda einnig að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir það tímabil sem hún uppfyllti ekki skilyrði laga um atvinnuleysistryggingar auk 15% álags eða samtals 44.435 kr.

Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.

 

Úrskurðarorð

Hin kærða ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 15. október 2014 í máli A, þess efnis að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda þar til hún hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði og hún skuli endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur með 15% álagi, samtals að fjárhæð 44.435 kr., er staðfest.

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta