Hoppa yfir valmynd
18. janúar 2024 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 508/2023-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 508/2023

Fimmtudaginn 18. janúar 2024

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 19. október 2023, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 23. ágúst 2023, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 26. janúar 2023 og var umsóknin samþykkt 7. febrúar 2023. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 23. ágúst 2023, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hennar væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hún hefði hafnað starfi hjá B. Mál kæranda var tekið fyrir að nýju hjá Vinnumálastofnun eftir að kærandi sendi frekari skýringar 23. og 24. ágúst 2023. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 30. ágúst 2023, var fyrri ákvörðun staðfest með þeim rökum að sú ákvörðun hefði að geyma efnislega rétta niðurstöðu.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 19. október 2023. Með bréfi, dags. 26. október 2023, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar vegna kærunnar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 28. desember 2023 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 3. janúar 2023. Athugasemdir bárust ekki.


 

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi tekur fram að mál hennar varði stórfurðuleg vinnubrögð og enn fáránlegri reglur hvað varði manneskju í 45% starfi í leit að 65% vinnu. Kærandi vilji sem sagt vera í minni vinnu og annarri á móti. Kærandi hafi hafnað 100% starfi þar sem hún sé í vinnu og atvinnurekandi sé ekki að fara að bíða eftir henni í þrjá mánuði því hún sé með þriggja mánaða uppsagnarfrest. Kæranda sé refsað fyrir það með tveimur bótalausum mánuðum sem sé rugl. Um sé að ræða stórfurðulegar reglur og þarna fari ekki saman hljóð og mynd.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 26. janúar 2023. Með erindi, dags. 7. febrúar 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 94%.

Þann 15. maí 2023 hafi Vinnumálastofnun borist þær upplýsingar að kærandi hefði hafnað starfi hjá B. Um hafi verið að ræða starf við afgreiðslu en kæranda hafi verið miðlað í umrætt starf af Vinnumálastofnun. Af upplýsingum frá atvinnurekanda megi ráða að kærandi hafi lýst því yfir að hún væri þegar í 50% hlutastarfi og væri að bíða eftir að fara á 50% örorkulífeyri. Kærandi hafi því hafnað starfstilboði hjá B.  

Með erindi, dags. 18. ágúst 2023, hafi Vinnumálastofnun óskað skýringa á ástæðum þess að kærandi hefði hafnað starfi hjá B. Stofnuninni hafi borist skýringar kæranda þann 16. og 22. ágúst 2023 þess efnis að hún hefði hafnað umræddu starfi þar sem hún væri nú þegar í 45% starfi. Í kjölfarið hafi kæranda verið tilkynnt með erindi, dags. 22. ágúst 2023, að greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar hefðu verið stöðvaðar sökum þess að hún hefði hafnað starfi hjá B. Sú ákvörðun hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 1. mgr. 61. gr. sömu laga. Þann 23. og 24. ágúst 2023 hafi Vinnumálastofnun borist erindi frá kæranda þar sem hún hafi óskað þess að mál hennar yrði tekið fyrir að nýju. Kærandi hafi greint frá því að hún væri einungis að leita að 55% starfi en ekki 100% starfi. Kærandi hafi í skýringum tilgreint að hún væri nú þegar skráð í 45% hlutastarf hjá C. samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta. Því hefði verið ómögulegt að taka umræddu starfstilboði sem henni hafi staðið til boða hjá B. Með erindi, dags. 30. ágúst 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að mál hennar hefði verið tekið fyrir að nýju með tilliti til nýrra gagna. Það væri hins vegar niðurstaða Vinnumálastofnunar að staðfesta bæri fyrri ákvörðun í máli hennar, enda hefði sú ákvörðun að geyma efnislega rétta niðurstöðu þrátt fyrir að ný gögn hefðu borist í máli hennar.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt tímabundna fjárhagsaðstoð í þrengingum sínum. Með lögunum sé verið að tryggja stöðu og öryggi fólks í tímabundnu atvinnuleysi. Því sé gert ráð fyrir að hinir tryggðu séu í virkri atvinnuleit þann tíma. Ríkar kröfur beri að gera til þeirra sem hafni starfi á innlendum vinnumarkaði um að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi.

Eitt af skilyrðum þess að umsækjandi um atvinnuleysisbætur eigi rétt til greiðslu atvinnuleysistrygginga sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. liður 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í 14. gr. laganna sé nánar kveðið á um hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Þar sé útlistað að umsækjandi þurfi meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, vera reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi án sérstaks fyrirvara, óháð því hvort um fullt starf eða hlutastarf sé að ræða og hafa til þess vilja og getu. Að öðrum kosti verði ekki litið á hlutaðeigandi í virkri atvinnuleit.

Fyrir liggi að kærandi hafi hafnað starfi hjá B. Henni hafi í kjölfarið verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Í athugasemdum með 57. gr. í frumvarpi því sem hafi orðið að lögum nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sé tekið fram að það að hafna því að fara í atvinnuviðtal eða sinna ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar hafi sömu áhrif og sú ákvörðun að taka ekki starfi sem bjóðist. Ástæðan sé einkum sú að atvinnuviðtal sé venjulega meginforsenda þess að hinum tryggða verði boðið starf og leggja megi þá ákvörðun að jöfnu við það að hafna starfi.

Samkvæmt 4. mgr. 57. gr. skuli Vinnumálastofnun meta við ákvörðun um viðurlög samkvæmt 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna því að mæta í atvinnuviðtal hafi verið réttlætanleg en í 4. mgr. segi orðrétt:

„Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Vinnumálastofnun sé gert að meta skýringar atvinnuleitanda vegna höfnunar á atvinnutilboði með hliðsjón af þeirri ríku skyldu sem hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til að vera reiðubúnir að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, án sérstaks fyrirvara og hafa til þess vilja og getu. Gert sé ráð fyrir að Vinnumálastofnun sé heimilt að líta til aldurs hins tryggða, félagslegra aðstæðna tengdum skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima við ákvörðun um hvort hinn tryggði skuli sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 57. gr. laganna. Enn fremur sé Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar í boði sé starf fjarri heimili hans sem geri kröfur um að hlutaðeigandi flytji búferlum.

Þær skýringar sem kærandi hafi veitt fyrir ástæðu höfnunar á umræddu starfi lúti einkum að því að hún sé nú þegar í 45% starfi. Henni hafi aðeins boðist starf í 100% starfshlutfalli hjá B. Hún hafi með vísan til framangreinds talið ómögulegt að taka umræddu starfi. Það sé mat Vinnumálastofnunar að framangreindar skýringar kæranda geti ekki talist gildar í skilningi 4. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Eins og fyrr segi hvíli rík skylda á atvinnuleitendum að taka því starfi sem þeim bjóðist, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi. Þá felist meðal annars í virkri atvinnuleit samkvæmt 1. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, án sérstaks fyrirvara og óháð því hvort um fullt starf eða hlutastarf sé að ræða. Vinnumálastofnun vísi jafnframt til athugasemda með 17. gr. í frumvarpi því sem hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar en þar sé sérstaklega vikið að tilvikum sem þessum. Þar segi að hinn tryggði þurfi að uppfylla það skilyrði að vera í virkri atvinnuleit þó hann sé í hlutastarfi á móti greiðslum atvinnuleysisbóta. Í því felist meðal annars að hann sé reiðubúinn að taka störfum sem bjóðist og feli í sér hærra starfshlutfall en það starf sem hann gegni. Þá vísist jafnframt til athugasemda með 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar í frumvarpi sem hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar þar sem segi að ekki skipti máli hvort það starf sem atvinnuleitanda bjóðist sé fullt starf eða hlutastarf. Með vísan til framangreinds sé ljóst að mati Vinnumálastofnunar að atvinnuleitendur geti ekki hafnað störfum á þeim forsendum að þeir séu þegar í hlutastarfi. Jafnframt árétti stofnunin að á umsókn kæranda um greiðslu atvinnuleysisbóta hafi hún tilgreint að hún óskaði eftir fullu starfi.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi hafi hafnað starfi í skilningi 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og ekki haft þar að baki gildar ástæður, sbr. 4. mgr. 57. gr. sömu laga. Því beri henni að sæta tveggja mánaða viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laganna.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Ákvæði 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 er svohljóðandi:

„Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Þá segir svo í 4. mgr. 57. gr. laganna:

„Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Samkvæmt gögnum málsins var kæranda þann 3. ágúst 2023 miðlað í starf hjá B. Fyrirtækið tilkynnti Vinnumálastofnun þann 9. ágúst 2023 að kærandi hefði hafnað starfinu þar sem hún væri þegar í 50% starfi. Kærandi hefur vísað til þess að hún sé í 45% starfi og leiti að 65% starfi á móti.

Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála er ekki réttlætanlegt að hafna tilboði um 100% starf á þeirri forsendu að unnið sé hlutastarf. Úrskurðarnefndin bendir á að í 1. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 er fjallað um almenn skilyrði þess að vera tryggður samkvæmt lögunum. Eitt af þeim skilyrðum er að vera í virkri atvinnuleit samkvæmt 14. gr. en í því felst meðal annars að hafa vilja og getu til að taka starfi án sérstaks fyrirvara, sbr. d. liður 1. mgr. ákvæðisins og að vera reiðubúinn að taka starfi óháð því hvort um fullt starf eða hlutastarf er að ræða eða vaktavinnu, sbr. f. liður 1. mgr. ákvæðisins.

Með vísan til framangreinds er það mat úrskurðarnefndarinnar að þær skýringar sem kærandi hefur gefið séu ekki þess eðlis að þær réttlæti höfnun á starfinu, sbr. 4. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006. Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 er því staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 23. ágúst 2023, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta