Hoppa yfir valmynd
18. maí 2009 Heilbrigðisráðuneytið

Þing Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar stendur yfir í Genf

Árlegt þing Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, hið sextugasta og annað í röðinni, er haldið þessa dagana í Genf. Viðbúnaður og viðbragðsáætlanir vegna heimsinflúensu eru efstar á dagskrá þingsins og þar með talið alþjóðasamvinna og sáttmálar til að verjast flensu sem herjar á heim allan. Þess utan ræða fulltrúar á þinginu grunnþjónustu heilbrigðismálanna, þá félagslegu þætti sem valda heilsutjóni og þá verður á þinginu rætt sérstaklega hvernig aðildarþjóðunum miðar við að hrinda í framkvæmd þúsaldarmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna á sviði heilbrigðismála. Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra, situr fundinn ásamt embættismönnum heilbrigðisráðuneytisins.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta