Hoppa yfir valmynd
21. júní 2023 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Ísafjörður og Egilsstaðir: Opnir samráðsfundir í hringferð ráðherra um málefni fatlaðs fólks

Verið velkomin á opinn samráðsfund á Ísafirði í hádeginu og á Egilsstöðum á morgun. - mynd

Ísafjörður og Egilsstaðir eru næstu viðkomustaðir í hringferð Guðmundar Inga Guðbrandssonar, félags- og vinnumarkaðsráðherra, vegna landsáætlunar í málefnum fatlaðs fólks. Opnir samráðsfundur fara fram í Edinborgarhúsinu á Ísafirði, miðvikudaginn 21. júní kl. 12:00 og á Berjaya Hérað Hótel á Egilsstöðum fimmtudaginn 22. júní kl. 17:00

Guðmundur Ingi býður þessar vikurnar til samráðsfunda um landið vegna landsáætlunar og í gær fór fram vel heppnaður fundur á Akureyri. Málefni fatlaðs fólks koma okkur öllum við og fólk er hvatt til að mæta og taka þátt. Hér gefst einstakt tækifæri til að hafa bein áhrif á þróun þjónustu við fatlað fólks á Íslandi.

  • Skrá þátttöku
    Ef þörf er á táknmálstúlkun, rittúlkun eða annarri sérstakri aðstoð er mikilvægt að það komi fram við skráningu

Viðkomustaðir í hringferðinni:

22. maí – Reykjanesbær kl. 17 (Bíósalur í Duus-safnahúsum)

24. maí – Borgarnes kl. 17 (B-59)

19. júní – Akureyri kl. 17 (Hof – Hamrar)

21. júní – Ísafjörður kl. 12 (Edinborgarhúsið)

22. júní – Egilsstaðir kl. 17 (Berjaya Hérað Hotel)

26. júní – Selfoss kl. 17 (Hótel Selfoss)

27. júní – Reykjavík kl. 17 (Grand hótel – Háteigur)

15. ágúst – Höfn kl. 12 (Nýheimar þekkingarsetur)

18. ágúst – Sauðárkrókur kl. 17 (Grána Bistro)

29. ágúst – Rafrænn fundur fyrir allt landið kl. 17

Dagskrá:

Á fundunum er fjallað um helstu áherslur í þjónustu við fatlað fólk í nútíð og framtíð og hvernig staðið verður að innleiðingu þeirra. Samráðsfundirnir hafa þann tilgang að tryggja milliliðalaust samtal um það sem fólki er efst í huga þegar málefni fatlaðs fólks ber á góma.

Fundirnir fara þannig fram að ráðherra flytur opnunarávarp og kynnt eru nokkur þeirra verkefna sem tilheyra landsáætluninni. Fulltrúar heildarsamtaka fatlaðs fólks fjalla um sínar áherslur og framtíðarsýn og starf notendaráða er kynnt. Að lokum býður ráðherra til samtals við viðstadda um það sem þeim er efst í huga.

Hringferðin hófst í maí með vel sóttum fundum í Reykjanesbæ og Borgarnesi. Í fyrradag var ráðherra sem fyrr segir á Akureyri og verður í hádeginu í dag á Ísafirði og á morgun á Egilsstöðum.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, á opnum fundi í Hofi á Akureyri í gær.

 Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, á opnum fundi í Hofi á Akureyri fyrr í vikunni. 
 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta