Nefnd um málefni flóttafólks
Þorsteinn Víglundsson félags- og jafnréttismálaráðherra hefur skipað nefnd sem kortleggja á núverandi þjónustu við þá sem fengið hafa stöðu flóttafólks eftir hælismeðferð og gera tillögu að samræmdu móttökukerfi fyrir flóttafólk.
Sérstaklega skal hugað að þætti sveitarfélaga og frjálsra félagasamtaka við móttöku flóttafólks, tengslum milli stjórnsýslustofnana og fræðslu fyrir starfsfólk ríkis og sveitarfélaga sem kemur að móttöku flóttafólks.
Skipun nefndarinnar er í samræmi við þingsályktun um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árið 2016-2019 sem samþykkt var af Alþingi þann 20. september 2016.
Nefndina skipa:
- Kristján Sturluson, án tilnefningar, formaður
- Anna Guðrún Björnsdóttir, tiln. af Sambandi íslenskra sveitarfélaga
- Guðlaug Hrönn Pétursdóttir, tiln. af Vinnumálastofnun
- Hrafnhildur Kvaran, tiln. af Rauða krossinum á Íslandi
- Íris Björg Kristjánsdóttir, tiln. af innanríkisráðuneytinu
- Páll Ólafsson, tiln. af Barnaverndarstofu
- Rúnar H. Haraldsson, tiln. af Fjölmenningarsetri
- Sigurður Örn Eyjólfsson, tiln. af Útlendingastofnun
Starfsmaður nefndarinnar er Linda Rós Alfreðsdóttir.