Mál nr. 64/2015 Úrskurður 28. ágúst 2015
Mál nr. 64/2015 Eiginnafn: Jarla
Hinn 28. ágúst 2015 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 64/2015 en erindið barst nefndinni 18. ágúst:
Eiginnafnið Jarla (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Jörlu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Jarla (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.