Opnun syslumenn.is
Fréttatilkynning
Nr. 2/2005
Sýslumannafélag Íslands hefur í samstarfi við dóms- og kirkjumálaráðuneytið opnað nýjan vef www.syslumenn.is sem inniheldur upplýsingar um verkefni sýslumanna og ýmsar leiðbeiningar til þeirra sem til embætta sýslumanna þurfa að leita. Á vefnum er einnig hvert embætti fyrir sig með eigin síðu þar sem helstu upplýsingar um starfsemi þess koma fram. Sýslumaðurinn í Reykjavík og í Keflavík eru að auki með eigin vefsvæði þar sem ítarlegri upplýsingar um þau embætti er að finna.
Vefnum er ætlað að auka þjónustu við borgarana, í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar.
Í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu,
10. janúar 2005.