Þúsundir gengu gegn umferðarslysum
Talið er að fjögur til fimm þúsund manns hafi tekið þátt í göngunni gegn umferðarslysum í Reykjavík í dag og nokkur hundruð á Selfossi og á Akureyri. Frumkvæði að göngunni eiga nokkrir hjúkrunarfræðingar á Landspítala - háskólasjúkrahúsi.
Í Reykjavík safnaðist mannfjöldinn saman við Landspítala við Hringbraut og gekk sem leið lá um Öskjuhlíð að þyrlupallinum við Landspítala í Fossvogi. Telja forráðamenn göngunnar að milli fjögur og fimm þúsund manns hafi tekið þátt, börn og fullorðnir á öllum aldri. Sleppt var rauðum blöðrum til að sýna stuðning þeim sem lent hafa í alvarlegum umferðarslysum og svörtum blöðrum til að minnast þeirra sem látist hafa í umferðarslysum.
Markmiðið með göngunni er að minna á alvarleg umferðarslys og afleiðingar þeirra og hversu ábyrgð ökumanna er mikil þegar meðhöndlun ökutækis er annars vegar. Eru ökumenn hvattir til að hafa í huga ábyrgð sína nú þegar miklar umferðarvikur eru framundan.
Þúsundir manna tóku þátt í göngunni í Reykjavík í blíðuveðri. | |||
Leifur Þorsteinsson, líffræðingur og leiðsögumaður hjá Ferðafélagi Íslands, leiddi göngumenn. |
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og slökkviliðsmenn tóku einnig þátt. |
||
Kristján Möller samgönguráðherra og Róbert Marshall, aðstoðarmaður hans, sem voru meðal göngumanna eru hér með börn Róberts. | |||