Uppreiknuð tekju- og eignamörk vegna félagslegra leiguíbúða
Í reglugerð um lánveitingar til leiguíbúða, ráðstöfun þeirra og rekstur, nr. 873/2001, er við hækkun á tekju- og eignamörkum miðað við hækkun á neysluverðsvísitölu. Í reglugerðinni er miðað við árlega hækkun neysluverðsvísitölu 1. janúar ár hvert og kveðið á um að félagsmálaráðherra skuli láta reikna viðmiðunarfjárhæðirnar í upphafi hvers árs og birta nýjar fjárhæðir.
Við útreikning á tekju- og eignamörkum er miðað við hækkun á neysluverðsvísitölu frá 1. janúar 2006 til 1. janúar 2007. Samkvæmt gögnum frá Hagstofu Íslands nemur hækkunin 6,95%.
Frá og með 1. janúar 2007 eru uppreiknuð tekju- og eignamörk skv. 23. og 24. gr. reglugerðar um lánveitingar til leiguíbúða, ráðstöfun þeirra og rekstur, nr. 873/2001, eftirfarandi:
- Tekjur fyrir einstakling 2.686.000 kr.
- Tekjur fyrir hvert barn að 20 ára aldri sem býr á heimilinu 450.000 kr.
- Tekjur fyrir hjón og sambúðarfólk 3.760.000 kr.
- Eignamörk verða 2.899.000 kr.