Breyting á reglugerð styrkir eftirlit og vöktun í laxeldi
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað tvær breytingar á reglugerðum um fiskeldi og um velferð lagardýra, varnir gegn sjúkdómum og heilbrigðiseftirlit með eldisstöðvum. Markmið breytinganna er meðal annars að styrkja eftirlit með vöktun á viðkomu sníkjudýra í eldinu.
Með breytingunum er:
- Kveðið sérstaklega á um að viðbragðsáætlun sem rekstrarleyfishafar sjókvíaeldisstöðva starfa eftir skuli samþykkt af Matvælastofnun
- Viðbragðsáætlunin þarf einnig að fela í sér aðgerðir fari meðaltalsfjöldi kynþroska kvenlúsa (með eða án eggjastrengja) innan viðkomandi svæða yfir ákveðin mörk (n.t.t. umfram 0.5, 1, 1.5, og 2 á hvern fisk sem er umtalsverð breyting frá fyrri reglugerð en þá voru mörkin við 3)
- Viðbragðsáætlun rekstrarleyfishafa skal virkjuð þegar meðaltalsfjöldi lúsa fer umfram 0.5 á hvern fisk og skal Matvælastofnun send tilkynning um það.
- Þegar slík tilkynning berst Matvælastofnun skal stofnunin meta hvort ráðstafanir rekstrarleyfishafa skv. viðbragðsáætlun séu að ná þeim árangri sem að sé stefnt eða hvort annarra aðgerða sé þörf.
- Rekstraraðili þarf að auki að tilkynna Matvælastofnun þegar meðaltalsfjöldi lúsa fer umfram 1, 1.5, 2 á hvern fisk og skal þá Matvælastofnun meta hvort annarra aðgerða en tilgreidar eru í viðbragðsáætlun sé þörf.