Björn Zoëga settur forstjóri frá 1. október
Björn Zoëga, framkvæmdastjóri lækninga, verður forstjóri Landspítala frá 1. október 2009 eða á meðan forstjóri verður í leyfi. Að ósk forstjóra Landspítalans Huldu Gunnlaugsdóttur, hefur Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra, veitt henni leyfi frá störfum til eins árs, frá 1. október 2009. Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að setja Björn Zoëga sem forstjóra Landspítalans, frá 1. október og þar til leyfi skipaðs forstjóra rennur út.